Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 07:01 Jonathan Klinsmann hálsbrotnaði í leik með ítalska félaginu Cesena. Getty/Gabriele Maricchiolo Jonathan Klinsmann, sonur þýsku knattspyrnugoðsagnarinnar Jürgen Klinsmann, hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli en ólíkt föður sínum þá spilar hann hinum megin á vellinum.
Klinsmann yngri er nú markvörður ítalska félagsins Cesena en hann meiddist síðast illa í leik í apríl. Hann skutlaði sér á boltann en fékk slæmt högg í höfuðið frá Filippo Ranocchia, leikmanni Palermo. Í viðtali við The Athletic rifjaði Klinsmann upp augnablikin í kringum áreksturinn við Ranocchia en hann stóð frammi fyrir því að geta aldrei spilað aftur. What he thought was a possible concussion or whiplash turned into something much scarier for American goalkeeper Jonathan Klinsmann.“It was bad — but it could have been an unreal amount worse.” pic.twitter.com/fNstXo7WDF— The Athletic (@TheAthletic) August 9, 2026 Bandaríski markvörðurinn lýsti þrautagöngu sinni skref fyrir skref. „Þetta var vont,“ sagði ég við sjálfan mig þegar Ranocchia lenti á mér. Svo velti ég mér á bakið og fann að hálsinn var fastur allan tímann. Hið raunverulega áfall kom þegar við ræddum við læknana: þeir sögðu okkur að áhættan væri mjög mikil,“ sagði Klinsmann. Klinsmann yngri, sem er sonur Jürgens, fyrrverandi leikmanns Stuttgart, Inter og Tottenham – sem stýrði bandaríska landsliðinu frá 2011 til 2016 – útskýrði erfiðleikana sem fylgdu meiðslunum. Í læknaskýrslunni var greint frá broti á efsta hálslið og skemmdum á liðböndum í hálsi. Ein heftiger Zusammenprall hätte für Jonathan Klinsmann beinahe schwere Folgen gehabt. Dem Sohn von Jürgen Klinsmann drohte die Querschnittslähmung. https://t.co/GCTjGopltH— heute.at (@Heute_at) August 11, 2026 „Ég var raunverulega nálægt því að geta aldrei spilað aftur, að geta aldrei gengið aftur. Þegar öllu er á botninn hvolft fór þetta illa, en það hefði getað farið verr,“ sagði Klinsmann. „Þetta var mjög nálægt mænunni, við C1-hálsligginn, sem ber nánast einn ábyrgð á öllum snúningi hálsins. Eftir að læknarnir sögðu mér þetta báðu þeir mig um að skrifa undir skjal,“ sagði Klinsmann en fyrir hálsaðgerðina þurfti hann að skrifa undir afsal. Meiðslin þýddu að hann fékk ekki að taka þátt í heimsmeistaramóti á heimavelli. „Ég var vonsvikinn yfir því að geta ekki klárað tímabilið með Cesena og geta ekki barist um sæti á HM,“ sagði Klinsmann en hann horfði á alla leiki bandaríska landsliðsins. Nú berst hann fyrir því að koma sterkari til baka. „Beinið þarf að gróa saman, síðan verða skrúfurnar fjarlægðar og beinið þarf að þéttast aftur, allt á meðan vöðvarnir jafna sig. Eitt af því sem ég er stoltastur af er að hugarfar mitt var aldrei neikvætt,“ sagði Klinsmann.
Ítalski boltinn Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Sjá meira