Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. ágúst 2026 12:02 Rob og Nick Reiner árið 2016. Getty/Rommel Demano Ákærukviðdómur hefur gefið út ákærur á hendur Nick Reiner, sem er sakaður um að hafa myrt foreldra sína, leikstjórann dáða Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Singer Reiner. Í ákærunni segir að Nick hafi setið fyrir foreldrum sínum nóttina sem hann myrti þau.
Nick, 32 ára, hefur lýst sig saklausan. Rob og Michele voru stungin til bana á heimili sínu í Brentwood í Los Angeles þann 14. desember 2025. Nick var handtekinn innan nokkurra klukkustunda. Kviðdómurinn notar orðalagið „lying in wait“ um aðdraganda morðanna, sem þýðir að Nick hafi setið fyrir foreldrum sínum eða falið sig áður en hann réðist á þau. Það er notað til að gefa til kynna að glæpurinn hafi verið skipulagður fyrirfram, sem þýðir að ef Nick verður fundinn sekur má dæma hann til dauða. Saksóknarar hafa þó ekki gert upp við sig hvort þeir hyggjast fara fram á það. „Þetta voru gríðarleg svik af hálfu manns sem var elskaður og treyst af þeim einstaklingum sem hann er sakaður um að hafa banað,“ sagði saksóknarinn Nathan Hochman í yfirlýsingu. Niðurstaða ákærukviðdómsins sé skref í átt að réttarhöldum og því að réttlætinu sé fullnægt. Ekkert hefur komið fram um það hvers vegna Nick varð foreldrum sínum að bana. Þá hefur réttarmeinafræðingnum í málinu verið bannað að opinbera krufningarskýrslur. Nick hefur farið fram á að fá peninga úr sjóði sem foreldrar hans stofnuðu fyrir hann til að fjármagna málsvörn sína. Umsjónarmenn sjóðsins hafa neitað. Ekki er um að ræða arf, heldur er um að ræða fjármuni sem áttu að renna til Nick jafnvel þótt foreldrar hans væru enn á lífi. Jake Reiner, eldri bróðir Nick, skrifaði í apríl síðastliðnum að morðið á foreldrum þeirra og sú staðreynd að bróðir hans væri grunaður í málinu væri „vakandi martröð“.
Hollywood Morðin á Rob og Michele Reiner Bandaríkin Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira