Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Kristján Már Unnarsson skrifar 14. ágúst 2026 22:00 Bjarni Haukur Bjarnason, bóndi á Kálfafelli, við skiltið umrædda. Egill Aðalsteinsson Sauðfjárbændur í Suðursveit, sem fengu nóg af ágangi ferðamanna, settu upp skilti við heimreiðina þar sem óboðnum gestum var hótað því að þeir yrðu settir í vændi. Núna virðist skiltið ætla að hafa þveröfug áhrif.
Í kvöldfréttum Sýnar heimsóttum við bændurna á Kálfafelli, þau Aðalbjörgu Bjarnadóttur og Bjarna Hauk Bjarnason, sem gripu til þess ráðs að setja upp skilti í von um að fækka óvelkomnum heimsóknum ferðamanna. „En það er frekar leiðinlegt að fá fólk heim á hlað að taka myndir, - af því að þeim finnst svo rosalega fallegt. Maður vill fá að vera í friði heima hjá sér,“ segir Aðalbjörg. Bjarni Haukur Bjarnason og Aðalbjörg Bjarnadóttir, bændur á Kálfafelli í Suðursveit.Egill Aðalsteinsson Ferðamennirnir voru farnir að valda fjölskyldunni ónæði allt árið, - á bæ sem sinnir sauðfjárbúskap en engri ferðaþjónustu. „Svo voru þeir að koma og festa sig hérna í snjó eða ekki í snjó. Svo komu þeir og gengu beint inn í hús,“ segir Aðalbjörg. „Já, á öllum tímum sólarhringsins,“ bætir Bjarni við. Bæjarhúsin á Kálfafelli í Suðursveit.Egill Aðalsteinsson Og sumar uppákomur skrítnar eins og þegar Bjarni var að smíða þakið á nýja húsinu. „Ég sit hérna uppi á sperrunni á húsinu og þá rennur bíll í hlað. Út kemur maður og kíkir á gluggana, - það var nú ekkert rafmagn eða neitt. Ég halla mér svona fram af stafninum og spyr hann hverju hann sé að leita að. Þá var hann að athuga hvort þetta væri gistingin hans. Honum fannst það kannski bara allt í lagi að hafa ekkert þak á kofanum. En já, það er ýmislegt reynt,“ segir Bjarni. Þau settu upp skilti: „Varið ykkur á hundinum,“ í von um að fæla frá. „Einkalóð. Varið ykkur á hundinum. Óviðkomandi bannaður aðgangur,“ var fyrsta skiltið. „Fólk kom bara heim að bænum og sagði að þetta væri sætur hundur. Hann væri ekkert hræðilegur,“ segir Bjarni. Og ferðamennirnir hafa sumir verið ágengir. „Mættu inn í fjárhús kannski bara á morgnana. Þegar þú kemur, þá er bara hópur af fólki þar inni sko bara búinn að bjóða sér velkominn þar inn. Eða þá gista hérna í hlaðinu bara í tjöldum og gera þarfir sínar í pípuhliðið. Já, þá fengum við bara nóg sko. Klósettpappír fjúkandi um alla hérna ræktunina hjá okkur. Þá tók Aðalbjörg til sinna ráða og gerði nýtt skilti,“ segir Bjarni. „Trespassers will be prostituted,“ stendur á skiltinu sem Aðalbjörg setti upp þegar ekkert gekk að losna undan ágangi ferðamanna heim á hlað.Egill Aðalsteinsson Á því stendur: „Trespassers will be prostituted,“ sem útleggst: Óboðnir gestir verða settir í vændi. „Þetta virkaði vel fyrst til þess að byrja með. En nú er þetta eiginlega farið að verða svona aðdráttarafl. Frekar en öfugt sko. Og margar myndir af þessu á netinu,“ segir Bjarni Haukur á Kálfafelli hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Landbúnaður Sveitarfélagið Hornafjörður Ferðaþjónusta Ferðalög Sauðfé Vændi Hundar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira