Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Kjartan Kjartansson skrifar 17. ágúst 2026 08:57 Donald Trump með Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, þegar þeir hittust öðru sinni í Singapúr árið 2018. Þeir hittust alls þrisvar á fyrra kjörtímabili Trump. Vísir/EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað varnarmálaráðuneyti sínu að draga verulega úr samstarfi Bandaríkjahers við Suður-Kóreu. Hann segir enga ógn stafa af Norður-Kóreu þrátt fyrir vígvæðingu alræðisríkisins.
Yfirlýsing Trump á samfélagsmiðli í gær kom eins og þrumu úr heiðskíru lofti en Suður-Kórea hefur verið eit helsta bandalagsríki Bandaríkjanna í Suðaustur-Asíu um áratugaskeið. Þá hefur Bandaríkjastjórn leitt refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna kjarnavopna- og eldflaugatilraun kommúnistaríkisins. Trump lýsti óánægju sinni með sameiginlegar heræfingar Bandaríkjahers og Suður-Kóreu í færslu sinni. Æfingarnar væru dýrar og Bandaríkin greiddu stóran hluta kostnaðarins. Ekki væri nóg með það heldur sagðist Trump telja að heræfingarnar „sendi skilaboð sem eru algerlega óviðeigandi og óvinveitt til lands sem hefur ekki verið ógnandi og sýnt virðingu á meðan Donald J. Trump hefur verið forseti.“ Í ljósi þess að það væri of seint að hætta við þátttöku í æfingunum sagðist Trump hafa skipað varnarmálaráðherra sínum að draga verulega úr þeim. Skjáskot af færslu Trump um Norður-Kóreu 16. ágúst 2026.Skjáskot Aðeins örfáir mánuðir eru liðnir frá því að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, mærði Suðurkóreumenn fyrir að leggja aukið fé til varnarmála og forystuhlutverk þeirra í öryggismálum á Kóreuskaga. Lýsti hann Suður-Kóreu sem fyrirmynd fyrir önnur bandalagsríki Bandaríkjanna. Setti Trump ákvörðun sína svo í samhengi við að suðurkóresk stjórnvöld hefðu ekki viljað taka þátt í hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna gegn Íran. Brutu alþjóðasamþykktir með eldflaugatilraunum Tugir þúsunda hermanna taka þátt í sameiginlegu viðbragðsæfingunni sem snýst um viðbrögð við hernaðarógn frá Norður-Kóreu. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að Norðurkóreumenn héldu áfram eldflaugatilraunum sínum í trássi við alþjóðlegt bann við þeim. Stjórnvöld í Pjongjang hótuðu bæði Bandaríkjunum og Suður-Kóreu fyrir helgi og lýstu heræfingu þeirra sem „undirbúningi fyrir árásarstríð“. Þrátt fyrir orð Trump um að Norðurkóreumenn væru ekki ógnandi hefur Kom byggt upp herafla og vopnabúr landsins á undanförnum árum og reglulega ógnað nágrannaríkjunum sínum með eldflaugatilraunum. Þá hefur Kim sent norðurkóreska hermenn til þess að aðstoða Vladímír Pútín Rússlandsforseta í árásarstríði hans gegn Úkraínu og séð Rússum fyrir flugskeytum sem hafa banað Úkraínumönnum. Trump lýsti sambandi sínu við Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, sem afar góðu í færslu sinni í gær. Fyrir nokkrum dögum birti hann mynd af þeim saman á samfélagsmiðli. Þá sagði hann að þeim kæmi mjög vel saman. Á fyrra kjörtímabili Trump hittust þeir Kim þrisvar sinnum. Fyrir það hafði bandarískur forseti aldrei fundaði með leiðtoga Norður-Kóreu.
Bandaríkin Donald Trump Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Fleiri fréttir Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Sjá meira