Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. ágúst 2026 06:45 Viðræður um frið á Gasa virðast í járnum. AP/Jehad Alshrafi Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, ítrekaði þá afstöðu stjórnvalda á fundi með Jared Kusnher, tengdasyni Donald Trump, í gær að engar frekari friðarviðræður myndu eiga sér stað né myndu Ísraelsmenn yfirgefa Gasa fyrr en Hamas samtökin hefðu afvopnast að fullu.
Þá er Netanyahu sagður hafa ítrekað að aðgerðum yrði haldið áfram á Gasa. Kushner, sem er einn helsti samningamaður Bandaríkjaforseta í utanríkismálum þrátt fyrir að starfa ekki formlega fyrir stjórnvöld vestanhafs, fundaði með leiðtogum Hamas í Egyptalandi á sunnudag. Þar var þeim sjónarmiðum samtakanna komið á framfæri að þau myndu ekki afvopnast fyrr en Ísraelsher yfirgæfi Gasa. Viðræður og friðaráætlun Trump virðast þannig hafa strandað. Netanyahu hafði áður hafnað 15 liða áætlun Bandaríkjaforseta til að þoka friðarferlinu áfram. Á fundinum með Kushner sagði hann ekkert myndu breytast fyrr en Hamas-liðar afvopnuðust og að afvopnun væri enn fremur forsenda þess að uppbygging gæti hafist. Forsætisráðherran óskaði eftir því að Bandaríkjamenn myndu hafa umsjón með afvopnuninni. Svokölluð „friðarstjórn“ Donald Trump, Board of Peace, sagði í yfirlýsingu að fundur Kushner og Netanyahu hefði verið langur og uppbyggilegur. Ísraelsstjórn ætlaði að láta á það reyna hvort Hamas myndu standa við sitt og boltinn væri núna hjá þeim. Staða Netanyahu er nokkuð þröng, þar sem Trump er sagður hafa litla þolinmæði gagnvart honum og stjórnvöld í nágrannaríkjunum hafa þrýst á um að Ísraelar hætti að tefja og leggi sitt af mörkum til að tryggja frið á Gasa. Þá hefur verið boðað til kosninga í Ísrael síðar á árinu en Netanyahu, sem hefur sætt rannsókn vegna spillingarmála, gæti fræðilega endað í fangelsi ef hann nær ekki endurkjöri.
Ísrael Bandaríkin Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira