Viðskipti innlent

Bene­dikt langlaunahæsti banka­stjórinn

Árni Sæberg skrifar
Ármann, Benedikt og Lilja eru launahæstu bankastjórar landsins.
Ármann, Benedikt og Lilja eru launahæstu bankastjórar landsins. Vísir

Benedikt Gíslason, bankastóri Arion banka, er með einni og hálfri milljón króna meira í laun á mánuði en næstlaunahæsti bankastjóri landsins. Þó eru tveir starfsmenn fjármálafyrirtækja á hærri launum en hann.

Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar, sem kom út í dag. Á lista blaðsins yfir starfsmenn fjármálafyrirtækja trónir Jóhann Guðlaugur Jóhannsson, meðeigandi Aztiq, með 8,9 milljónir króna á mánuði. Samstarfskona hans Guðrún E. Gunnarsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri Aztiq, er önnur með 7,4 milljónir.

Þriðji er Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, með 6,5 milljónir og fjórða er Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion, með 6 milljónir á mánuði.

Næstu tveir á lista eru einnig starfsmenn Arion en næstlaunahæsti bankastjóri landsins er Ármann Þorvaldsson í Kviku, sem var með 5 milljónir króna á mánuði. Lilja Björk Einarsdóttir í Landsbankanum er þriðji launahæsti bankastjórinn, með 4,7 milljónir, og Jón Guðni Ómarsson í Íslandsbanka rekur lest bankastjóra, með 4,4 milljónir króna á mánuði.

Hér að neðan má sjá lista yfir tuttugu launahæstu starfsmenn fjármálafyrirtækja í fyrra og laun þeirra í þúsundum króna:

  • Jóhann Guðlaugur Jóhannsson, meðeigandi Aztiq, 8.901
  • Guðrún E. Gunnarsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri Aztiq, 7.405
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, 6.499
  • Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka, 6.057
  • Hákon H. Gröndal, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, 5.440
  • Ólafur Hrafn Höskuldsson, fjármálastjóri Arion banka, 5.200
  • Ármann Harri Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, 5.145
  • Birna H. Káradóttir, framkvæmdastjóri reksturs og menningar Arion banka, 5.059
  • Jóhann Georg Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka, 4.739
  • Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, 4.655
  • Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, 4.650
  • Þorbjörn Atli Sveinsson, sérfræðingur Acro verðbréfum, 4.619
  • Bergsteinn Ó. Einarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar Landsbanka, 4.446
  • Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, 4.402
  • Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis, 4.245
  • Aðalsteinn R. Óttarsson, fjárfestingarstjóri hjá Makers Fund, 4.184
  • Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjármálastjóri Sjóvár, 4.106
  • Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, 4.106
  • Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsbanka, 4.079
  • Helgi T. Helgason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbanka, 4.067

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025.

Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×