Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 08:07 Einar Margeir Ágústsson bætti sig í öllum þremur einstaklingsgreinum sínum á EM, í ólympíulauginni í París. SSÍ Sundkappinn Einar Margeir Ágústsson „mölvaði á sér hendurnar“ í byrjun maí þegar hann lenti í slysi á rafhlaupahjóli. Hann óttaðist þá að ferlinum væri lokið og árangrinum á EM í París nú í ágúst, þremur mánuðum eftir slysið, mætti hreinlega líkja við kraftaverk. Einar Margeir var farinn að hlakka til Evrópumeistaramótsins þar sem hann renndi sér niður brekku á hlaupahjólinu, sem hann hafði fest kaup á í Walmart. Hann var þá að ljúka sínu fyrsta ári í Háskóla Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, í frábæru formi og tilbúinn í mót sumarsins. „Ég var bara á leiðinni niður brekku og bremsan bilaði, svo ég flaug alveg af því,“ segir Einar Margeir í samtali við Vísi. Allt í einu var ekkert útlit fyrir að hann gæti látið að sér kveða á EM og raunar óttaðist þessi 21 árs Skagamaður það versta. „Ég flaug af hjólinu og mölvaði á mér vinstri úlnlið og brotnaði líka í hægri olnboganum. Þurfti að fara í aðgerð og eitthvað vesen, og gat ekki synt almennilega í tvo mánuði. Ég var alveg hræddur um að þetta þýddi endalok ferilsins. En svo náði ég að vera duglegur að sinna endurhæfingunni, vinna vel með sjúkraþjálfurum, og þetta gekk upp,“ segir Einar Margeir. Einar Margeir var í boðsundssveit Íslands sem setti nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi.SSÍ Hann glímir þó enn við afleiðingar slyssins. „Ég gat ekki synt á fullu fyrr en það var svona einn og hálfur mánuður í EM. En ég get enn í dag ekki lyft lóðum almennilega og er ekki orðinn hundrað prósent. Get ekki gert til dæmis bekkpressu og „clean“. Ég þarf að vinna áfram með þetta og veit í raun ekki hvort þetta verður hundrað prósent aftur.“ En Einar Margeir gat synt á EM, svo sannarlega. Hann keppti í þremur einstaklingsgreinum og bætti sig í þeim öllum, auk þess að eiga sinn þátt í Íslandsmeti íslensku sveitarinnar í 4x100 metra fjórsundi á lokadegi mótsins í París. Bætti sig í öllum greinum á EM í París 30. sæti í 50 metra bringusundi, á 27,77 sekúndum og bætti sig um 12/100 úr sekúndu 33. sæti í 100 metra bringusundi á 1:00,87 mínútu og bætti sig um 36/100 úr sekúndu 32. sæti í 200 metra bringusundi á 2:15,16 mínútum og bætti sig um 82/100 úr sekúndu „Þetta kom mér rosalega á óvart. Ég bjóst ekki við að þetta mót yrði neitt spes og hafði bara hugsað með mér að ná að verða innan við tveimur sekúndum frá mínu besta,“ segir Einar Margeir sem eins og sjá má hér að ofan gerði mun betur en það og var skiljanlega glaðbeittur í viðtali við RÚV. View this post on Instagram A post shared by RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) Hann er kominn með góða reynslu af stórmótum eftir að hafa núna farið tvisvar á EM og tvisvar á HM fullorðinna, auk stórmóta unglinga og sterkra háskólamóta í Bandaríkjunum. Meðfram sundinu sinnir Einar Margeir svo námi í íþróttafræði (e. Exercise science) og íhugar að fara í læknisnám í framhaldi af því. Eftir mótið í París hungrar Einar Margeir eflaust í enn frekari árangur og vonandi mun slysið á rafhlaupahjólinu ekki aftra honum frekar frá því. „En ég fer ekki aftur á það. Það fór bara beint í ruslið. Þetta er stórhættulegt.“ Sund Mest lesið Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök Ætla að segja KR-ingum að halda kjafti „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fúll yfir tapi London: HM í frjálsum fer í fyrsta sinn til Afríku Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan Mahomes snéri aftur með látum „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sjá meira
Einar Margeir var farinn að hlakka til Evrópumeistaramótsins þar sem hann renndi sér niður brekku á hlaupahjólinu, sem hann hafði fest kaup á í Walmart. Hann var þá að ljúka sínu fyrsta ári í Háskóla Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, í frábæru formi og tilbúinn í mót sumarsins. „Ég var bara á leiðinni niður brekku og bremsan bilaði, svo ég flaug alveg af því,“ segir Einar Margeir í samtali við Vísi. Allt í einu var ekkert útlit fyrir að hann gæti látið að sér kveða á EM og raunar óttaðist þessi 21 árs Skagamaður það versta. „Ég flaug af hjólinu og mölvaði á mér vinstri úlnlið og brotnaði líka í hægri olnboganum. Þurfti að fara í aðgerð og eitthvað vesen, og gat ekki synt almennilega í tvo mánuði. Ég var alveg hræddur um að þetta þýddi endalok ferilsins. En svo náði ég að vera duglegur að sinna endurhæfingunni, vinna vel með sjúkraþjálfurum, og þetta gekk upp,“ segir Einar Margeir. Einar Margeir var í boðsundssveit Íslands sem setti nýtt Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi.SSÍ Hann glímir þó enn við afleiðingar slyssins. „Ég gat ekki synt á fullu fyrr en það var svona einn og hálfur mánuður í EM. En ég get enn í dag ekki lyft lóðum almennilega og er ekki orðinn hundrað prósent. Get ekki gert til dæmis bekkpressu og „clean“. Ég þarf að vinna áfram með þetta og veit í raun ekki hvort þetta verður hundrað prósent aftur.“ En Einar Margeir gat synt á EM, svo sannarlega. Hann keppti í þremur einstaklingsgreinum og bætti sig í þeim öllum, auk þess að eiga sinn þátt í Íslandsmeti íslensku sveitarinnar í 4x100 metra fjórsundi á lokadegi mótsins í París. Bætti sig í öllum greinum á EM í París 30. sæti í 50 metra bringusundi, á 27,77 sekúndum og bætti sig um 12/100 úr sekúndu 33. sæti í 100 metra bringusundi á 1:00,87 mínútu og bætti sig um 36/100 úr sekúndu 32. sæti í 200 metra bringusundi á 2:15,16 mínútum og bætti sig um 82/100 úr sekúndu „Þetta kom mér rosalega á óvart. Ég bjóst ekki við að þetta mót yrði neitt spes og hafði bara hugsað með mér að ná að verða innan við tveimur sekúndum frá mínu besta,“ segir Einar Margeir sem eins og sjá má hér að ofan gerði mun betur en það og var skiljanlega glaðbeittur í viðtali við RÚV. View this post on Instagram A post shared by RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) Hann er kominn með góða reynslu af stórmótum eftir að hafa núna farið tvisvar á EM og tvisvar á HM fullorðinna, auk stórmóta unglinga og sterkra háskólamóta í Bandaríkjunum. Meðfram sundinu sinnir Einar Margeir svo námi í íþróttafræði (e. Exercise science) og íhugar að fara í læknisnám í framhaldi af því. Eftir mótið í París hungrar Einar Margeir eflaust í enn frekari árangur og vonandi mun slysið á rafhlaupahjólinu ekki aftra honum frekar frá því. „En ég fer ekki aftur á það. Það fór bara beint í ruslið. Þetta er stórhættulegt.“
Bætti sig í öllum greinum á EM í París 30. sæti í 50 metra bringusundi, á 27,77 sekúndum og bætti sig um 12/100 úr sekúndu 33. sæti í 100 metra bringusundi á 1:00,87 mínútu og bætti sig um 36/100 úr sekúndu 32. sæti í 200 metra bringusundi á 2:15,16 mínútum og bætti sig um 82/100 úr sekúndu
Sund Mest lesið Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök Ætla að segja KR-ingum að halda kjafti „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fúll yfir tapi London: HM í frjálsum fer í fyrsta sinn til Afríku Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan Mahomes snéri aftur með látum „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sjá meira