Sport

Ólympíumeistarar trúlofast: „Við gætum ekki hugsað okkur lífið án hvors annars“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Riku Miura og Ryuichi Kihara eru trúlofuð.
Riku Miura og Ryuichi Kihara eru trúlofuð. olympics.com

Riku Miura og Ryuichi Kihara, listskautapar sem vann gullverðlaun fyrir hönd Japans á síðustu Vetrarólympíuleikum, hafa gengið saman og tilkynnt um trúlofun.

„Við erum trúlofuð,“ tilkynnti parið, sem er þekkt undir gælunafninu „Riku-Ryu“, á Instagram.

„Í gegnum bæði súrt og sætt höfum við staðið saman og stutt hvort annað. Með tímanum höfum við orðið óaðskiljanlegur hluti af lífi hvors annars, við gætum ekki hugsað okkur lífið án hvors annars.

Nú byrjum við nýjan kafla og munum halda áfram að styðja hvort annað,“ var skrifað undir færsluna en parið tilkynnti eftir síðustu Vetrarólympíuleika að listskautarnir væru á leið upp í hillu.

Í Mílanó og Cortina síðastliðinn febrúar urðu þau fyrsta japanska listskautaparið til að vinna gullverðlaun á Ólympíuleikum og í leiðinni settu þau heimsmet yfir stigafjölda.

Kihara hefur glímt við þrálát bakmeiðsli síðustu ár og Miura hefur ítrekað farið úr axlarlið, en parinu hefur tekist að heilla heimsbyggðina með geislandi glaðri framkomu á svellinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×