„Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Smári Jökull Jónsson skrifar 25. ágúst 2026 19:12 Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, efast um að uppsagnirnar hafi verið nægilega vel ígrundaðar og segir þær fordæmalausar í sögu Reykjavíkurborgar. Sameyki Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp stöfum í dag í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Formaður Sameykis segir að um starfsmenn í framlínustörfum sé að ræða og gagnrýnir uppsagnarferlið harðlega.
Breytingarnar á skipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs leiða til uppsagna áttatíu og sex starfsmanna en af þeim fá þrjátíu og tveir boð um ný eða breytt störf en fimmtíu og fjórir munu ekki fá áframhaldandi starf. Eiga breytingarnar að skila hagræðingu sem nemur um 900 milljónum króna á ári. Nýtt skipurit mun taka gildi 1. september og samkvæmt nýju skipuriti er stjórnendum og millistjórnendum fækkað. Svæðismiðstöðvar Reykjavíkurborgar hafa hingað til verið fjórar og í yfirlýsingu borgarinnar kemur fram að fjórskipting þjónustu í fræðslu- og velferðarmálum hafi takmarkað heildaryfirsýn í málaflokknum. Nú mun öll félags- og húsnæðisþjónusta vera með aðstöðu á einum stað líkt og þjónusta barna-, fjölskyldu-, skóla- og frístundamála. Formaður Sameykis segir daginn búinn að vera þungan. „Fyrst og fremst fyrir félagsfólk að missa vinnuna í dag og aðgerðirnar sem hafa verið undanfarna mánuði. Fyrst með upplýsingafulltrúum og svo skólaliðum sem voru ellefu sem var verið að segja upp. Og síðan með þessari aðgerð, þetta er fordæmalaust í sögu Reykjavíkurborgar,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. Hann efast um að þessi stóra ákvörðun hafi verið nægilega vel ígrunduð. „Þetta eru svo sannarlega ekki bara stjórnendur sem sitja á skrifstofunum. Þetta er fólk sem er í framlínustörfum og hefur sinnt ráðgjöf inni í skólum, félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum og alls konar viðkvæmri þjónustu við borgina.“ Kári sat fundi sem trúnaðarmaður í morgun og gagnrýnir uppsagnarferlið. „Það er hringt í fólk í morgunsárið, þau eru boðuð á fund og þeim er ekki sagt frá efni fundarins. Þau eru ekki hvött til að taka með sér trúnaðarmann. Þau eru jafnvel boðuð með tveggja tíma fyrirvara. Það er ekkert við þetta mannúðlegt eða eitthvað sem við í velferðarsamfélaginu Íslandi getum sagt að eigi sér einhverja hliðstæðu. Ég hef séð þetta í bandarískum bíómyndum.“ Svæðin sem miðstöðvarnar sinntu áður málaflokkunum á Austurmiðstöð Norðurmiðstöð Suðurmiðstöð Vesturmiðstöð
Reykjavík Vinnumarkaður Stéttarfélög Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira