Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Bjarki Sigurðsson skrifar 26. ágúst 2026 19:27 Við Rafstöðvarveg hefur þetta húsnæði sem kemur til með að hýsa leikskóla risið með hraði. Vísir/Sigurjón Nýr leikskóli með pláss fyrir yfir hundrað börn hefur sprottið upp með undraverðum hraða í Elliðaárdal. Verktaki afhendir borginni hann á næstu vikum. Vonast er til að hægt sé að hefja starfsemi þar sem allra fyrst.
Nánast fullbúin bygging er risin við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal sem mun hýsa sjö deilda leikskóla fyrir 120 börn. Á tæpum mánuði hefur svæðið umturnast líkt og sjá má í klippunni hér fyrir neðan. Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að horfa á klippuna úr kvöldfréttum Sýnar. Húsnæðið er byggt af Laka ehf. í samstarfi við pólska fyrirtækið Nuconic. Húsið er byggt í einingum sem voru settar saman um síðustu mánaðamót. Gert er ráð fyrir að húsið verði fullbúið að innan og utan eftir sex vikur. „Það er allt til alls hérna. Þetta eru einingahús sem eru byggð innandyra og flutt hingað. Þannig þær eru byggðar við bestu aðstæður,“ segir Sigrún Ásta Einarsdóttir, formaður leikskóla- og daggæsluráðs Reykjavíkurborgar. Leigja húsið Húsið verður í eigu byggingaraðilans sem leigir það til Reykjavíkurborgar. Sigrún segir erfitt að giska á hvenær starfsemi hefjist í húsinu en eftir á að útbúa útisvæðið. Vonandi verði hægt að hafa samband við foreldra með börn á biðlista sem fyrst. „Þetta er frábær staðsetning fyrir austurhluta borgarinnar. Það er fjöldi fólks sem fer til vinnu um Ártúnsbrekkuna og getur komið hér við í leiðinni. Það er mikil uppbygging á Höfða þannig að leikskólinn mun sinna því hverfi og fólk í Bryggjuhverfinu mun eiga greiða leið hingað,“ segir Sigrún Ásta. Falleg hönnun Litríkir stálbitar á efri hæð hússins vekja mikla athygli þegar ekið er fram hjá en þar verða hálfyfirbyggðar leiksvalir fyrir börnin. „Mér finnst rosalega mikilvægt að byggingin gefi hlýtt viðmót þegar fólk er að koma í Elliðaárdalinn. Maður vill reyna að halda í þá upplifun,“ segir Hulda Jónsdóttir hjá arkitektastofunni Hjark en hún hannaði húsið.
Leikskólar Reykjavík Borgarstjórn Arkitektúr Tíska og hönnun Skóla- og menntamál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira