Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar 27. ágúst 2026 10:13 Þolinmæði þjóðarinnar er á þrotum, eins og fram kemur í könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið sem gerð var 13. til 24. ágúst sl. Meðal þeirra sem tóku afstöðu sögðu 85% ríkisstjórnina hafa staðið sig illa í baráttunni við verðbólgu og 87% illa í vaxtamálum. Niðurstaðan kemur ekki á óvart, en hún er þó jafnvel verri en margir áttu von á. Meginvextir Seðlabankans eru 8% eftir þriðju hækkun ársins, verðbólgan hefur verið yfir 5% allt árið og mældist 5,3% í júlí. Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5%. Heimili og fyrirtæki bera kostnaðinn og atvinnuleysi hefur aukist. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 6,3% í júlí samkvæmt Hagstofunni, 1,2 prósentustigum meira en í júní. Þetta þekkir fólk á eigin skinni. Í fundarherferð Framsóknar um landið undanfarnar vikur heyrðist sama sagan þvert á landshluta: fólk saknar aðgerða til að auka hagvöxt og bæta lífskjör. Þær sjást ekki. Á sama tíma hefur ríkisstjórnin kosið að setja þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í forgrunn stjórnmálanna. Við erum þegar hluti af innri markaði ESB EES-samningurinn tengir Ísland innri markaði Evrópu og tryggir frjálst flæði vöru, fólks, þjónustu og fjármagns. Þetta samstarf er okkur nauðsynlegt og verður það áfram. Innan EES stöndum við hins vegar utan tollabandalags ESB og utan sameiginlegrar fiskveiði- og landbúnaðarstefnu sambandsins. Við höfum þannig víðtækan aðgang að innri markaðnum en höldum jafnframt sjálfstæðri stefnu í sjávarútvegi og landbúnaði. Með fullri aðild yrðu þessir málaflokkar hluti af sameiginlegu reglu- og ákvörðunarkerfi ESB. Krónan kostar sitt en hún hefur líka mikilvægt hlutverk Lítið myntsvæði hefur vissulega sinn kostnað. Vextir verða að jafnaði hærri hér vegna smæðar hagkerfisins og áhættuálags. Evra gæti lækkað þann kostnað og eytt gengisáhættu gagnvart evrusvæðinu, en ávinningurinn er hvorki sjálfgefinn né skjótur. Á móti myndi Ísland ekki lengur reka sjálfstæða peningastefnu. Vextir yrðu ákveðnir af Seðlabanka Evrópu með hliðsjón af stöðu evrusvæðisins í heild og gengið gæti ekki lengur brugðist við séríslenskum efnahagsáföllum. Fyrir lítið hagkerfi sem byggir að verulegu leyti á sjávarútvegi, ferðaþjónustu og orku skiptir það máli. Evran kæmi heldur ekki um leið og hugsanleg aðild að ESB tæki gildi. ESB-ríki sem hyggst taka upp evru þarf meðal annars að uppfylla svonefnd Maastricht-skilyrði og taka þátt í gengissamstarfinu ERM II í að minnsta kosti tvö ár. Það tæki því nokkur ár að taka upp evru, jafnvel þótt Ísland gengi í ESB. Mikilvægasta verkefnið nú er því að koma verðbólgu niður og skapa skilyrði fyrir lægri vexti, óháð umræðunni um evru eða ESB Kosið á laugardag, vextir á mánudag Það er misskilningur að ESB-aðild eða upptaka evru leysi sjálfkrafa íslensk efnahagsvandamál. Fjármál ýmissa ríkja sambandsins standa sjálf frammi fyrir miklum áskorunum. Frakkland er skýrt dæmi. Framkvæmdastjórn ESB áætlar að halli hins opinbera þar verði 5,1% af landsframleiðslu í ár og að opinberar skuldir verði um 118% af landsframleiðslu. Samkvæmt sömu spá fara skuldirnar yfir 120% á næsta ári. Meginatriðið er einfalt. Ábyrg ríkisfjármál, jafnvægi á húsnæðismarkaði, aukin framleiðni og baráttan við verðbólgu og háa vexti verða áfram verkefni okkar sjálfra. Þar liggur brýnasta verkefni stjórnmálanna nú. Upplýsingaóreiða og einföld slagorð hjálpa þjóðinni ekki að taka upplýsta ákvörðun næsta laugardag. Við eigum að rækta náið samstarf við Evrópu, en jafnframt ræða af raunsæi hvað aðild getur leyst og hvað hún getur ekki leyst. ESB-aðild er ekki efnahagsleg skyndilausn. Verkefnið nú er að ná niður verðbólgu og vöxtum, styrkja atvinnulífið og skapa skilyrði fyrir aukinn hagvöxt. Ábyrgðin á því verður áfram hjá íslenskum stjórnvöldum, hvernig sem þjóðin greiðir atkvæði laugardaginn 29. ágúst. Höfundur er þingmaður og varaformaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun