„Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 29. ágúst 2026 10:12 Ólafur Þ. Harðarson býst við spennandi kosningavöku. Myndin er frá kosningavöku Sýnar þegar sveitarstjórnarkosningar fóru fram í maí síðastliðnum. Vísir/Vilhelm Kjördagur er runninn upp og munurinn á hópi þeirra sem hyggjast kjósa já og þeirra sem hyggjast kjósa nei varðandi áframhald aðildarviðræðna við ESB mælist afar lítill. „Ég spái því að þetta verði rosalega spennandi og skemmtileg kosninganótt,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði. „
Ég met stöðuna þannig að þetta sé hnífjafnt og hafi eiginlega ekkert breyst síðustu tvo mánuði,“ sagði Ólafur þegar hann var beðinn um að rýna í nýjustu tölur. Hnífjafnt er milli fylkinganna tveggja, já og nei, í nýjustu og síðustu skoðanakönnun Maskínu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þar sem 50,4 prósent ætla að segja já en 49,6 prósent ætla að segja nei. Ólafur segir kannanir fyrirtækjanna tveggja, Maskínu og Gallups, sem spurt hafa reglulega um afstöðu kjósenda í aðdraganda kosninganna, sýna áþekkar niðurstöður. Hann segir hvora hlið hafa verið í námunda við fimmtíu prósentin en færst til um eitt til tvö prósent í senn. „Það er enginn marktækur munur þarna. Þessar kannananiðurstöður, bæði hjá Maskínu og Gallup, segja okkur nákvæmlega ekkert um það hvernig þessi kosning fer á morgun. Þetta gæti ekki verið meira spennandi,“ sem fylgst hefur grannt með öllum kosningum hérlendis síðustu áratugi og verið fastagestur í kosningavökum sjónvarpsmiðla. Ólafur er vinsæll álitsgjafi þegar kemur að kosningum á Íslandi. Vísir/Arnar Halldórsson Skoðanakannanir óvissu háðar Ólafur segir að alltaf muni vera byggð inn í skoðanakannanir ákveðin óvissa. Stærsta óvissuþáttinn við þessar kosningar segir hann vera kjörsókn. „Hún hefur verið mismunandi,“ segir Ólafur. „Í tvennum síðustu [þjóðaratkvæðagreiðslum] sem voru 2011 um Icesave þá kusu 75 prósent. Síðan var 2012 þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrána, þá kusu 49 prósent. Mér sýnist á utankjörfundaratkvæðunum – og að það virðist vera stemning fyrir þessu – að það sé líklegra að við verðum með 75, jafnvel 80 [prósent] eins og við höfum venjulega verið með í þingkosningunum.“ Aldur ekki stóra breytan „Ekki í þessum könnunum,“ segir dr. Ólafur aðspurður um hvort eldri kjósendur séu íhaldssamari og vilji heldur halda í óbreytt ástand. „Í þessum könnunum hefur þetta aðeins rokkað með aldrinum en almennt talið hefur verið lítil dreifing eftir aldri. En við vitum hins vegar með kjörsóknina að þeir yngstu og þeir elstu kjósa dálítið í minna mæli heldur en hinir. Nokkur munur sé þó á afstöðu eftir búsetu. Meirihluti íbúa höfuðborgarsvæðisins hyggst segja já, samkvæmt skoðanakönnunum, en á landsbyggðinni er því öfugt farið. „Kjörsókn í undanförnum kosningum í kjördæmunum, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, hefur bara verið mjög svipuð,“ bendir Ólafur á og vindur sér að næstu breytu, sem hann telur líklegasta til að hafa áhrif: menntunarstig kjósenda. „Í tvennum síðustu kosningum þá voru það 87 prósenta fólks með háskólapróf sem kaus, 81 prósent þeirra sem voru með framhaldsskólamenntun en ekki nema 71 prósent hjá þeim sem eru með grunnskólamenntun.“ Þetta geti endað á að skipta máli. „Hjá háskólafólki eru 55-60 prósent með já en meðal þeirra sem eru með grunnskólann eru það yfir 60 prósent sem segja nei. Þáttur af þessu tagi gæti skipt sköpum en auðvitað vitum við ekki, við erum bara að skoða hér söguleg gögn og vitum ekki hvernig kjörsókn verður í einstökum hópum.“ Kosningabarátta mikilvæg fyrir samfélagsumræðuna Í segir að lítið hafi breyst í hlutföllum milli hliðanna tveggja í skoðanakönnunum. Engu að síður sé þó kosningabarátta mikilvæg. „Það er auðvitað mikilvægt að ræða málin. Þó að fáir skipti um skoðun er ekki þar með sagt að kosningabaráttan hafi verið til einskis. Þetta hefur á margan hátt verið fín kosningabarátta,“ segir Ólafur en hver er spá kosningaspekingsins? „Ég bara spái því að þetta verði rosalega spennandi og skemmtileg kosninganótt. En það gæti að sjálfsögðu líka gerst að önnur hvor hliðin væri bara með sæmilega gott forskot í fyrstu tölum,“ segir Ólafur en bendir þó á að mikilvægt sé að vera kominn með tölur úr öllum kjördæmum áður en lagt sé mat á stöðuna þar sem líklegt sé að tölur komi fyrst úr landsbyggðarkjördæmum þar sem nei-ið mælist hærra í könnunum. „Við þurfum eiginlega tölur úr öllum kjördæmum til að sjá hvort það sé einhver tilhneiging í gangi. En ég held að þetta verði mjög spennandi.“
Skoðanakannanir Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira