Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2026 14:15 Tölvugerð mynd af Borgarlínustöð við HR eftir breytingarnar. Framkvæmdir við Borgarlínu eru hafnar við Nauthólsveg og HR. Þar er um að ræða hluta af fyrstu lotu Borgarlínunnar sem felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs. Einnig stendur til að breyta gatnamótum og götutengingum en verkinu á að ljúka í júlí 2028.
Ekki stendur til að loka fyrir umferð um svæðið á þessum tíma en notast verður við hjáleiðir fyrir akandi, hjólandi, gangandi og almenningssamgöngur. Í tilkynningu frá Betri samgöngum segir að verksamningur hafi verið gerður við Gröfu og Grjót og Malbikunarstöðina Höfða, sem hafi átt lægsta tilboðið upp á 2,27 milljarða króna. Samningurinn er undir áætluðum kostnaði við verkið sem var metinn 2,9 milljarðar. „Með framkvæmdunum við Nauthólsveg styrkjum við tengingu almenningssamgangna milli Fossvogsbrúar og Vatnsmýrarinnar með nýju sérrými. Um leið verða aðstæður fyrir gangandi og hjólandi bættar verulega, en áfram verður ein akrein fyrir bílaumferð í hvora átt. Framkvæmdirnar skapa jafnframt tækifæri fyrir Veitur til að endurnýja lagnir sínar,“ segir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, í tilkynningunni. Hér má sjá hvernig framkvæmdasvæðið verður og hvernig Borgarlínan á að liggja.Betri samgöngur Í tilkynningunni kemur einnig fram að breytingarnar feli í sér breikkun þversniðs Nauthólsvegar og að komið verði fyrir sérrými fyrir almenningssamgöngur í miðri götu, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð sem áfram verður 1+1. Innifalið í þessu verki er gerð Borgarlínustöðvar við HR, ný aðkoma að HR, ný aðkoma að Landhelgisgæslunni og ljósastýrð gatnamót í stað hringtorgs.
Reykjavík Borgarlína Samgöngumál Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira