Viðskipti innlent

Svara ekki spurningum um mögu­legar upp­sagnir hjá NetApp

Kjartan Kjartansson skrifar
NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu.
NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu. Vísir/Getty

Bandarískt móðurfélag NetApp á Íslandi svarar ekki spurningum um hvort að starfsfólki hér hafi verið sagt upp störfum. Talsmaður fyrirtækisins segir það „þróa skrifstofueignasafn þess til þess að styðja langtíma viðskipaáætlun þess“.

Á áttunda tug starfa hjá NetApp á Íslandi eru í hættu eftir að starfsfólki þar var tilkynnt að skrifstofan hér á landi yrði lögð niður í vikunni. NetApp á Íslandi er dótturfélag evrópsks dótturfélags NetApp í Bandaríkjunum.

Fjölmiðlafulltrúi NetApp svaraði ekki spurningum Vísis um hvort að skrifstofunni hefði verið lokað eða hún færð úr landi og hvort að starfsfólki hefði verið sagt upp störfum eða fært til.

„NetApp heldur áfram að þróa skrifstofueignasafn sitt til þess að styðja langtímaviðskiptaáætlun sína. Sem hluti af því verkefni er fyrirtækið að samræma fjárfestingar sínar í vinnustöðum þannig að þær styðji fyrirtækjamiðstöðvar og sérhæfingarmiðstöðvar sem liðka fyrir samstarfi, nýsköpun og árangri viðskiptavina,“ sagði í svarinu sem bandaríska fyrirtækið sendi Vísi.

„Þessar ákvarðanir eru miðaðar að því að setja fyrirtækið í stöðu fyrir framtíðarvöxt á sama tíma og þær styðja þarfir þess,“ segir þar ennfremur.

Um fimmtíu forritarar hafa starfað hjá NetApp á Íslandi samkvæmt heimildum Vísis. Í ársreikningi félagsins frá því í fyrra kom fram að um níutíu manns hefðu starfað fyrir fyrirtækið að jafnaði. Starfsemi skrifstofunnar á Íslandi tengdist þróun og rannsóknum.

Hrönn Guðmundsdóttir, stjórnarformaður NetApp á Íslandi, vísaði á almannatengsladeild NetApp í Bandaríkjunum í gær. Hún vildi ekki tjá sig frekar um starfsemina á Íslandi í dag eftir að svar bandaríska félagsins bárust.

Skriflegt svar NetApp í Bandaríkjunum við fyrirspurn Vísis á ensku má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„NetApp is continuing to evolve its office portfolio to support its long-term business strategy. As part of that effort, the company is aligning its workplace investments to support enterprise hubs and specialized centers of excellence that enable collaboration, innovation, and customer success. These decisions are designed to position the company for future growth while supporting the needs of the business.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×