Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Stefán Árni Pálsson skrifar 6. september 2026 08:01 Modric er hvergi nærri hættur með landsliðinu. Vísir/ Justin Setterfield/Getty Images Luka Modric hefur engin áform um að leggja landsliðsskóna á hilluna þrátt fyrir að verða 41 árs í næstu viku. Fyrirliðinn ætlar að halda áfram að leika með króatíska landsliðinu og verður meðal annars með í komandi leikjum liðsins í Þjóðadeildinni.
Knattspyrnusamband Króatíu staðfesti að Modric hefði ákveðið að halda áfram með landsliðinu en fram undan eru meðal annars leikir gegn Englandi. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Slaven Bilic tók á ný við stjórnartaumunum hjá Króatíu. Bilic var einnig landsliðsþjálfari Króata þegar Modric steig sín fyrstu skref með A-landsliðinu. Modric lék sinn fyrsta landsleik í mars 2006 og hefur síðan þá komið við sögu í 202 landsleikjum og skorað 29 mörk. Talið var líklegt að Modric myndi kveðja landsliðið eftir HM í sumar. Króatar féllu þar úr leik í 32-liða úrslitum gegn Portúgal, en miðjumaðurinn hefur nú ákveðið að halda ferðalaginu áfram. „Auðvitað gleður ákvörðun Luka mig gríðarlega. Við vitum öll hvað hann færir Króatíu, bæði innan vallar og utan,“ sagði Bilic. „Ég hlakka til að vinna með honum aftur eftir 14 ár. Við deilum báðir sterkum metnaði um að halda Króatíu meðal bestu landsliða heims.“ Modric, sem leikur nú með AC Milan, á að baki afar glæsilegan landsliðsferil. Hann var valinn besti leikmaður HM 2018 þegar Króatar komust alla leið í úrslitaleikinn í Rússlandi, þar sem þeir töpuðu fyrir Frökkum. Fjórum árum síðar varð Modric síðan hluti af króatíska liðinu sem hafnaði í þriðja sæti á HM í Katar. Næstu verkefni Króatíu eru í Þjóðadeildinni. Liðið mætir Tékklandi á útivelli 26. september og Spáni þremur dögum síðar. England kemur svo í heimsókn 3. október áður en Króatar mæta Englendingum aftur á Wembley 12. nóvember. Modric stefnir því ótrauður á að bæta enn fleiri landsleikjum við metið sitt – og gæti orðið 41 árs gamall þegar hann mætir Englandi á Wembley.
Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira