Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Stefán Árni Pálsson skrifar 5. september 2026 23:02 Leikmenn leiksins mynduðu hring utan um Froholdt. Vísir/Miguel Lemos/NurPhoto via Getty Images Victor Froholdt, tvítugur miðjumaður Porto og danskur landsliðsmaður, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa misst meðvitund í leik Porto gegn Moreirense í portúgölsku deildinni á föstudagskvöld.
Atvikið átti sér stað á 85. mínútu þegar Froholdt varð fyrir höggi í höfuðið frá olnboga Guilherme Liberato, leikmanni Moreirense. Froholdt féll til jarðar og lá hreyfingarlaus. Jan Bednarek, liðsfélagi Froholdt og fyrrverandi leikmaður Southampton, var fyrstur að honum og kom honum í hliðarlegu. Leikmenn beggja liða mynduðu hring í kringum Froholdt á meðan hann fékk aðhlynningu. Froholdt var að lokum borinn af vellinum á börum og fékk mikið klapp frá áhorfendum þegar hann var fluttur af leikvanginum. Á sjúkrahúsi yfir nótt Rannsóknir leiddu í ljós að hann hafði fengið heilahristing en engin önnur frávik komu fram í fyrstu rannsóknum. Hann var þó hafður áfram á sjúkrahúsi til eftirlits yfir nótt. „Hann er á sjúkrahúsi í rannsóknum en virðist vera í góðu standi. Hann er með meðvitund og fréttirnar eru jákvæðar,“ sagði Francesco Farioli, þjálfari Porto, eftir leikinn. Porto staðfesti síðar að Froholdt væri við góða heilsu og að engin frávik hefðu komið fram í þeim rannsóknum sem gerðar voru. Áætlað var að hann yrði útskrifaður af sjúkrahúsinu á laugardagsmorgun. Liberato var rekinn af velli vegna atviksins og bað Froholdt síðar afsökunar opinberlega. Froholdt hefur vakið mikla athygli á undanförnum misserum og verið orðaður við bæði Arsenal og Manchester United. Newcastle hefur einnig verið nefnt í tengslum við leikmanninn.
Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira