Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. september 2026 22:02 Upp úr sauð í Amsterdam í gær. Photo Prestige/Soccrates/Getty Images Aaron Bouwman, leikmaður Ajax, er enn á spítala eftir að hafa orðið fyrir hræðilegu broti af hálfu Rubens van Bommel, leikmanns PSV, í leik erkifjendanna í hollensku úrvalsdeildinni í gær.
Ajax greinir frá því á miðlum félagsins í dag að Bouwman hafi orðið fyrir þónokkrum mismunandi meiðslum eftir samstuðið við van Bommel í gær. Þar á meðal sé hann með marið bringubein og mar á lungum. Van Bommel og Bouwman fljúga til jarðar eftir að sá fyrrnefndi fór harkalega utan í þann síðarnefnda.Photo Prestige/Soccrates/Getty Images Van Bommel fór sérlega harkalega í Bouwman, alltof seint, með skoppandi bolta. Allt sauð upp úr á vellinum og leikmenn liðanna tókust á. Mark van Bommel var mikill harðhaus. Sonur hans sætir nú gagnrýni vegna grófs brots.NordicPhotos/GettyImages Van Bommel er sonur Marks van Bommel, fyrrverandi leikmanns PSV, Barcelona, Bayern Munchen og AC Milan. Sá var mikill harðhaus, talinn grófur á velli sem djúpur miðjumaður en sonurinn, Ruben van Bommel, sem leikur sem kantmaður, hefur síður verið talinn til grófra leikmanna. Brot hans í gær hefur hins vegar vakið hörð viðbrögð og ekki síst vegna þess að myndbandsdómarar ákváðu ekki að senda dómara leiksins í skjáinn til að skoða möguleika á rauðu spjaldi. Van Bommel yngri slapp með skrekkinn með gult spjald og kláraði leikinn, annað en fórnarlambið Bouwman, sem fór beinustu leið á sjúkrahús þar sem hann dvelur enn. Hugo Borst spijkerhard voor Ruben van Bommel: "Dit is een moordaanslag."#ajapsv pic.twitter.com/tlfnENpqTL— ESPN NL (@ESPNnl) September 5, 2026 Ákvörðunin að reka van Bommel ekki af velli hafði líklega sín áhrif, þar sem hans lið PSV vann 3-1 sigur á Ajax í leiknum. Hollenski sjónvarpsmaðurinn Hugo Borst sagði í útsendingu leiksins í gær: „Þetta er morðtilraun.“ Bouwman liggur óvígur eftir, liðsfélagar hans kalla eftir aðstoð á meðan aðrir slást.OLAF KRAAK / ANP (Photo by ANP via Getty Images) Ekki liggur fyrir hvort aganefnd hollenska knattspyrnusambandsins muni eða hafi heimild til þess að dæma van Bommel í bann vegna málsins. Myndskeið af brotinu má sjá í spilaranum.
Hollenski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira