Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Árni Sæberg skrifar 8. september 2026 10:58 Kareem við komuna í dómsal þegar málið var þingfest í júní síðastliðnum. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þremur karlmönnum, sem ákærðir eru fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi, fer fram í dag. Myndskeið var spilað fyrir dómi sem sýndi hvernig ekið var á brotaþola á mikilli ferð.
Mennirnir þrír Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed sæta ákæru fyrir að hafa í félagi reynt að svipta íslenskan karlmann lífi í bílakjallaranum þann 17. mars síðastliðinn. Keyrt á brotaþola, hann barinn og loks stunginn Í ákæru er Kareem sagður hafa ekið Land Rover-bifreið, á mikilli ferð á brotaþola, þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll í jörðina þar sem ákærði Qossay hafi barið brotaþola ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi og í kjölfarið hafi ákærði Mohamad stungið brotaþola í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni. Allt hafi þetta verið með þeim afleiðingum að brotaþoli var settur í lífshættulegt ástand og hlaut sár í húðbeði vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á vinstri beinhjótu á vinstra upphandleggsbeini, mar, bólgur og fleiðusár á vinstri ökkla og þreifeymsli á vinstri handlegg og kvið. Kannaðist ekki við að hafa ekið bílnum á brotaþola Ákærði Kareem mætti fyrir dóm í morgun og gaf skýrslu. Hann neitar sök í málinu líkt og hinir sakborningarnir tveir. Sækjandi málsins bar undir hann myndskeið úr öryggismyndavélum bílakjallarans undir Höfðatorgi, sem sýndi nokkurn fjölda manna, sem virtust margir hverjir vopnaðir bareflum. Kareem var beðinn um að bera kennsl á mennina sem voru með honum í hvítum Land Rover Defender og í kringum bifreiðina. Hann gat borið kennsl á einhverja þeirra en aðra sagðist hann ekki þekkja. Þá var upptaka úr öryggismyndavél spiluð, sem sýnir brotaþola hlaupa undan Land Rovernum hvíta áður en honum var ekið á hann á mikilli ferð. Í kjölfarið sést brotaþoli kastast upp í loft og hringsnúast áður en hann lendir á jörðinni, þónokkrum metrum frá þeim stað þar sem ekið var á hann. Kareem sagðist ekki hafa verið undir stýri bifreiðarinnar þegar ekið var á brotaþola. Hann vissi ekki hver hefði ekið henni, þar sem hann hefði ekki verið á svæðinu. Myndskeiðið sýndi einnig hvernig brotaþoli var barinn með kylfu í kjölfar þess þegar ekið var á hann.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Við þingfestingu Höfðatorgsmálsins svokallaða neituðu tveir hinna ákærðu sök en hinn þriðji var ekki viðstaddur. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 25. júní 2026 09:57 Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík aðfararnótt 17. mars síðastliðins. Sá sem fyrir árásinni varð fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. 22. júní 2026 14:40 Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Lögregla hefur lokið rannsókn á lífshættulegri árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Málið er komið á borð héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um að gefa út ákæru. 4. júní 2026 14:04 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Fleiri fréttir Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Sjá meira
Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Við þingfestingu Höfðatorgsmálsins svokallaða neituðu tveir hinna ákærðu sök en hinn þriðji var ekki viðstaddur. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 25. júní 2026 09:57
Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík aðfararnótt 17. mars síðastliðins. Sá sem fyrir árásinni varð fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. 22. júní 2026 14:40
Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Lögregla hefur lokið rannsókn á lífshættulegri árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Málið er komið á borð héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um að gefa út ákæru. 4. júní 2026 14:04