Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar 8. september 2026 20:33 Þá höfum við séð nýjustu niðurstöðurnar úr PISA könnuninni sem lögð var fyrir nemendur í 10.bekk 2025. En PISA kannanir eru lagðar fyrir á vegum OECD og byggja á því að nemendur nýti þekkingu sína og rökhugsun við lausn fjölbreyttra verkefna. Það sem kemur fyrst upp í huga minn sem hugsanlegar skýringar fyrir slöku gengi eru vangaveltur um gæði námsefnis, þá leiðsögn sem fagnámskrár eiga að gefa og um fagþekkingu kennara í PISA greinum. Við dölum enn þó nokkuð þegar kemur að lesskilningi og stærðfræði en ekki eins mikið í náttúrugreinum (vísindum). En gleymum ekki að horfa á og gleðjast yfir þeim þáttum sem koma jákvætt út eins og t.d. seigla nemenda er hér mikil, líðan þeirra almennt góð, þeir meta sig bjartsýna, krakkarnir telja sig í jákvæðu sambandi við kennara og eiga auðvelt með að fá aðstoð. En hver er ástæðan fyrir þessari stöðu? Nú tekur þjóðin sig til og tjáir sig og enn og aftur verður talað um „átak“ – hugsanlega hristir það upp í kerfinu í einhvern tíma en verður málum fylgt eftir eða fjarar „átakið“ út eins og svo mörg önnur? Áður en ég snéri mér nær alfarið að náms- og starfsráðgjöf kenndi ég í um 20 ár tvær núverandi PISA greinar, stærðfræði og náttúrufræði, á unglingastigi en fylgdist eðlilega alltaf mjög vel með því hvaða námsefni var verið að nota og var tiltækt. En af hverju komum við svona illa út í þeim hluta könnunarinnar sem snýr að námsgreinunum? Þó svo að það sé gagnlegt að sjá okkur í samanburði við önnur lönd þá er ekki síður gagnlegt að sjá framvinduna hjá okkur í gegnum árin. Ástæður stöðunnar eru margar og margvíslegar – hér kemur til ýmislegt í ytra umhverfi barnanna okkar og það þarf ekki að fara mörgum orðum um heimavöllinn og aðkomu foreldra. Svo eru ýmsir aðrir þættir sem horfa þarf til eins og t.d. sá „andi“ sem fylgt hefur þessari könnun, því viðhorf skipta miklu máli. En höfum það líka hugfast að hér á landi tekur 78% af árgangnum þessa könnun, á hinum Norðurlöndunum er þetta 6 – 9% og fer í öðrum löndum alveg niður í 1% og jafnvel 0,2% í Bandaríkjunum. Auðvitað getur þetta haft einhver áhrif ef “allir” hér fara í þessa könnun sökum þess hve fá við erum og með mjög fjölbreyttan nemendahóp í almennum grunnskólum. Í fjölmennari löndum er ákv. hlutfall valið og í ýmsum löndum er ekki eins mikil breidd nemenda í almennum skólum. Áhugavert væri að fá frekari upplýsingar frá öðrum löndum í OECD hvað varðar val nemenda og samsetningu. Hvar eru þröskuldarnir? Auðvitað er það lykilatriði að skapa skólum ákjósanlegt umhverfi og gera kröfur til ytri og innri þátta í skólastarfi. Mitt mat er að yfirvöld menntamála verði að horfa fyrst og fremst á þrjú mikilvæg atriði, þ.e. það námsefni sem kennarar hafa úr að moða, hvort hæfniviðmið Aðalnámskrár grunnskóla í þessum þremur greinum séu nægilega skýr og svo verður að spyrja þeirrar spurningar hvort fagleg kunnátta kennara í þessum námsgreinum sé nægileg. Tekur framboð á námsefni mið af skýrri námskrá? Ég tel að skortur á innihaldsríku og fjölbreyttu námsefni skipti hér miklu máli, ekki bara út frá PISA heldur almennt út frá kröfum um góða menntun nemenda. Væri ekki áhugavert að fá erlent námsefni frá nokkrum ólíkum löndum innan OECD til skoðunar og bera það saman við okkar námsefni? Hvað er eins eða svipað og hvað er öðruvísi – uppbygging, innihald og nálgun? Hugsanlega heftur þetta verið gert á markvissan hátt – og ef svo er þá væri gott að fá að sjá niðurstöðu þeirrar greiningar. Væri ekki á sama hátt áhugavert að skoða og bera saman námskrárnar – hvað er líkt og hvað er ólíkt? Fyrst við erum í þessum alþjóðlega samanburði og leggjum upp úr góðum árangri og stöðu okkar nemenda þarf grunnlínan að vera sambærileg. Í námskrám viðkomandi námsgreina þarf að koma skýrt fram hvað á að kenna eða vinna með á unglingastigi, hvaða hæfni er gert ráð fyrir að nemendur búi yfir. Ég tel að við þurfum að yddað mun betur orðalag og áherslur og einfaldað og fækkað til muna undirköflum í hverri námsgrein, en eins og þetta er núna er þetta flókið og yfirgripsmikið. Síðan þarf auðvitað að skoða hvort það námsefni sem kennurum stendur til boða og þeir eru að nota endurspegli þær áherslur sem fram kom í námskrá. Eru menntamálayfirvöld að kanna með reglubundnum og markvissum hætti hvað verið er að kenna í þessum greinum vítt og breitt um landið? Búa fagkennarar í þessum greinum yfir nægilegri hæfni? Einnig þarf virkilega að skoða kennaranámið m.a. hvernig valgreinarnar eru byggðar upp, greinar sem verða væntanlega kennslugreinar viðkomandi kennaranema. Gera þarf kröfur til kennaranema um víðtæka og djúpa þekkingu og hæfni í sínum valgreinum. Jafnframt má bjóða strax upp á námskeið fyrir starfandi kennara í íslensku, stærðfræði og náttúrufræði sem vilja dýpka kunnáttu sína og efla sig í starfi. Námskeið sem þessi falla vel að þeirri símenntun sem kennarar þurfa að sinna og væri því hvalreki. Það þarf að forgangsraða! Í mínum huga er það þrennt sem þarf að endurskoða, þ.e. námskráin, námsefnið og menntun kennara. Við þurfum líka að horfa á allt grunnskólastigið, ekki bara síðasta árið því grunnurinn er lagður mikið fyrr. En við vitum að þetta tekur allt langan tíma og kostar mikið og er alls ekki til þess fallið að vinna í einum grænum. Ekkert af þessu er hrist fram úr erminni svo vel sé - því þarf að forgangsraða. Það þarf að liggja fyrir hvað t.d. „vantar“ í núverandi námsefni og ég vona að sú vinna að forgangsröðun sé nú þegar hafin. Ég vil nefna að það ætti að setja í forgang námskeið fyrir kennara, vinna með foreldrasamtökum grunnskólanemenda og heyra frá þeim hvernig hægt sé að fá foreldra á vagninn, það þarf ákv. ímyndarvinnu hvað varðar þessa könnun – sýna fram á gildi hennar þó svo að hver og einn nemandi fái ekki einkunn, skoða viðmiðunarstundaskrá því hugsanlega þarf að breyta vægi námsgreina og fl. þarf að skoða strax og vinnast í góðri samvinnu við þá sem málið varðar. Þetta er allt mjög mikilvægt í mínum huga en enn og aftur – ekki bara út af PISA heldur til að tryggja nemendum góða menntun. Höfundur er fv. kennari og náms- og starfsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein PISA-könnun Skóla- og menntamál Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun