Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 9. september 2026 07:30 Það var viðbúið að vinsælt þema í skrifum þessa dagana yrði gagnrýni á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er enda óhætt að segja að stórtæk skatta- og gjaldahækkunaráform hafi ekki vakið mikla lukku hjá skattpíndum almenningi og fyrirtækjum í landinu. Ég læt mitt ekki eftir liggja í þessari óánægjubylgju. Við getum verið sammála um að markmið um hallalaus fjárlög sé jákvætt, enda nauðsynlegt að vinna á hallarekstri sem myndaðist hér við ítrekuð áföll undanfarin ár. Leiðin sem ríkisstjórnin velur að þeim eru hins vegar skatta- og gjaldahækkanir á fólk og fyrirtæki í landinu. Það er eitt að efast megi um að þessar hækkanir ríkisstjórnarinnar muni skila tilætluðum tekjum. Annað er hins vegar orðið fullreynt og það eru áhrif skatta- og gjaldahækkana á verðbólgu og þar með hátt vaxtastig í landinu. Það væri óskandi að ríkisstjórnin létti frekar byrðum af almenningi í landinu í stað þess að þyngja róðurinn. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum m.a. beint sjónum að barnafjölskyldum með tillögum um skattalækkanir og skattafrádrátt sem myndi nýtast þeim sérstaklega. Ég hef lagt fram á ný frumvarp okkar um skattafrádrátt vegna æskulýðsstarfs barna og um að hætt verði að leggja virðisaukaskatt á ýmsar barnavörur svo sem barnaföt, bleyjur og aðrar nauðsynjavörur fyrir börn. Þá fylgir með frumvarp frá Vilhjálmi Árnasyni um skattafrádrátt vegna heimilishjálpar, m.a. vegna þrifa og umönnunar. Sömuleiðis má nefna frumvarp Vilhjálms um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði sem við sjálfstæðismenn leggjum nú fram enn einu sinni á Alþingi. Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags og há verðbólga og vaxtastig kemur auðvitað illa við þá sem hafa börn á sínu framfæri. Við ættum að ráðast í að lækka skatta og opinberar álögur á barnafjölskyldur og létta þeim frekar róðurinn en hitt. Tillögur okkar sjálfstæðismanna tryggja stuðning við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Fjárlagafrumvarp 2027 Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Það var viðbúið að vinsælt þema í skrifum þessa dagana yrði gagnrýni á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er enda óhætt að segja að stórtæk skatta- og gjaldahækkunaráform hafi ekki vakið mikla lukku hjá skattpíndum almenningi og fyrirtækjum í landinu. Ég læt mitt ekki eftir liggja í þessari óánægjubylgju. Við getum verið sammála um að markmið um hallalaus fjárlög sé jákvætt, enda nauðsynlegt að vinna á hallarekstri sem myndaðist hér við ítrekuð áföll undanfarin ár. Leiðin sem ríkisstjórnin velur að þeim eru hins vegar skatta- og gjaldahækkanir á fólk og fyrirtæki í landinu. Það er eitt að efast megi um að þessar hækkanir ríkisstjórnarinnar muni skila tilætluðum tekjum. Annað er hins vegar orðið fullreynt og það eru áhrif skatta- og gjaldahækkana á verðbólgu og þar með hátt vaxtastig í landinu. Það væri óskandi að ríkisstjórnin létti frekar byrðum af almenningi í landinu í stað þess að þyngja róðurinn. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum m.a. beint sjónum að barnafjölskyldum með tillögum um skattalækkanir og skattafrádrátt sem myndi nýtast þeim sérstaklega. Ég hef lagt fram á ný frumvarp okkar um skattafrádrátt vegna æskulýðsstarfs barna og um að hætt verði að leggja virðisaukaskatt á ýmsar barnavörur svo sem barnaföt, bleyjur og aðrar nauðsynjavörur fyrir börn. Þá fylgir með frumvarp frá Vilhjálmi Árnasyni um skattafrádrátt vegna heimilishjálpar, m.a. vegna þrifa og umönnunar. Sömuleiðis má nefna frumvarp Vilhjálms um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði sem við sjálfstæðismenn leggjum nú fram enn einu sinni á Alþingi. Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags og há verðbólga og vaxtastig kemur auðvitað illa við þá sem hafa börn á sínu framfæri. Við ættum að ráðast í að lækka skatta og opinberar álögur á barnafjölskyldur og létta þeim frekar róðurinn en hitt. Tillögur okkar sjálfstæðismanna tryggja stuðning við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun