Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Bjarki Sigurðsson skrifar 9. september 2026 07:34 Íbúar á Suðurnesjum þurfa að bíða með að fara í sturtu þar til á morgun. Nema þeir vilji fara í kalda sturtu. Vísir/Egill HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins.
Framkvæmdirnar verða við hitaveitu við Njarðarbraut og við dælustöð á Fitjum. Klukkan fjögur í nótt var lokað fyrir heitt vatn í Ytri-Njarðvík, Keflavík og Suðurnesjabæ. „Gera má ráð fyrir að heitt vatn verði komið á aftur innan 12–24 klukkustunda, en það verður mismunandi eftir svæðum hvenær vatnið skilar sér að fullu,“ segir í tilkynningu á vef HS Veitna. Klukkan átta verður lokað fyrir heitt vatn í Innri-Njarðvík, á Ásbrú, á Keflavíkurflugvelli og í Vogum. „Gera má ráð fyrir að lokunin vari í 5–7 klukkustundir. Heitt vatn getur þó borist áfram til einhverra viðskiptavina eftir kl. 08:00 vegna vatns sem þegar er í tönkum og dreifikerfi,“ segir í tilkynningunni. Þegar framkvæmdum lýkur taki tíma að byggja upp þrýsting í hitaveitukerfinu. Heita vatnið gæti því skilað sér misfljótt til viðskiptavina eftir staðsetningu. Viðskiptavinir eru hvattir til að gera ráðstafanir með góðum fyrirvara. „Í tengslum við framkvæmdina verður tímabundið notast við uppblöndun á jarðhitagufu í framleiðsluferlinu í Svartsengi. Tilgangurinn er að draga úr súrefni í vatninu og verja þannig dreifikerfi og lagnakerfi húsa gegn tæringu. Uppblöndunin getur valdið hveralykt af heita vatninu,“ segir í tilkynningunni.
Vatn Reykjanesbær Suðurnesjabær Vogar Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira