Öryggi sjúklinga byggist á samstarfi og trausti Marta Jóns Hjördísardóttir og Ólöf Elsa Björnsdóttir skrifa 17. september 2026 08:01 Í dag 17. september er alþjóðlegur dagur öryggis sjúklinga. Frá árinu 2019 hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hvatt aðildarríki sín til að nýta daginn til að vekja athygli á mikilvægi sjúklingaöryggis, efla þátttöku sjúklinga og samfélagsins í öryggismálum og hvetja heilbrigðisstofnanir til markvissra umbóta í þágu öruggari heilbrigðisþjónustu. Þema dagsins í ár er „Örugg þjónusta á öllum æviskeiðum“ með áherslu á fólk með langvinna sjúkdóma. Lykilatriði að þjónusta sé samfelld Stór hluti þeirra sem þurfa að sækja þjónustu hjá Landspítala eru einstaklingar með langvinna sjúkdóma á öllum aldri. Fyrir suma nær þjónustan ekki bara yfir daga eða vikur heldur oft mörg ár og jafnvel alla ævi. Þá skiptir máli að þjónustan sé samfelld, að upplýsingar séu aðgengilegar og fylgi á milli þeirra sem koma að meðferð og að hlustað sé á sjúklinga og aðstandendur. Oft felst áskorunin ekki aðeins í sjúkdómnum sjálfum heldur einnig í því að þjónustan er veitt af mörgum aðilum, á mismunandi stöðum og yfir langt tímabil. Þegar meðferð spannar mörg ár og marga fagaðila aukast líkurnar á að upplýsingar glatist, misskilningur verði eða ábyrgð verði óljós. Þess vegna er lykilatriði að þjónustan sé samfelld og vel samhæfð. Fólk þarf að vita hvert það getur leitað, að upplýsingar séu aðgengilegar, á réttum stað og að það geti tekið virkan þátt í ákvörðunum um eigið heilbrigði. Þekking eykur getu fólks til að taka upplýstar ákvarðanir, spyrja spurninga og taka virkan þátt í eigin meðferð. Að læra af reynslu sjúklinga Fólk með langvinna sjúkdóma hefur einstaka sýn á heilbrigðisþjónustuna. Það veit hvernig þjónustan birtist þeim sem hana nota og getur bent á bæði styrkleika hennar og tækifæri til umbóta. Reynsla sjúklinga og aðstandenda er því ein verðmætasta uppspretta þekkingar um gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu. Landspítali fær reglulega ábendingar um þjónustuna frá notendum, bæði sjúklingum og aðstandendum. Erindin eru ólík en eiga það flest sameiginlegt að í þeim felst ósk um að hlustað sé á reynslu þeirra og að lærdómur sé dreginn af henni svo hægt sé að koma í veg fyrir að aðrir þurfi að upplifa það sama. Traust þarf að vera til staðar svo sjúklingar og aðstandendur treysti sér til að koma á framfæri athugasemdum, ábendingum og kvörtunum án þess að óttast að sjónarmið og reynsla þeirra skipti ekki máli eða að það hafi neikvæð áhrif á meðferðina. Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk taki erindum frá sjúklingum vel, þekki réttindi þeirra og hvaða formlegu leiðir er hægt að fara til að koma athugasemdum og kvörtunum til skila. Endurgjöf sjúklinga og aðstandenda ómetanleg Á gæðadeild Landspítala er unnið að því að efla gæði og öryggi þjónustunnar og styðja við stöðugar umbætur. Reynsla sjúklinga og aðstandenda er þar ómetanleg því hún veitir innsýn sem tölur, mælingar og önnur gögn sýna oft ekki. Þjónustukannanir, ábendingar og reynslusögur veita mikilvægar upplýsingar um hvernig þjónustan nýtist fólki í raun og veru og hvar tækifæri eru til að gera betur. Alþjóðlegur dagur öryggis sjúklinga minnir okkur á að öryggi er sameiginlegt verkefni. Heilbrigðisstarfsfólk, stjórnendur, sjúklingar og aðstandendur hafa öll mikilvægu hlutverki að gegna. Örugg og notendamiðuð heilbrigðisþjónusta byggist á samstarfi, opnum samskiptum og gagnkvæmu trausti. Þegar reynsla sjúklinga og markvisst umbótastarf fara hönd í hönd skapast betri forsendur fyrir auknum gæðum og öruggari heilbrigðisþjónustu fyrir okkur öll. Höfundar eru Marta Jóns Hjördísardóttir, talskona sjúklinga á Landspítala, og Ólöf Elsa Björnsdóttir, gæðastjóri á Landspítala. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar