Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 13. september 2026 22:01 Rúnar Gunnarsson, yfirhafnarstjóri í Múlaþingi, segir fækkun skemmtiferðaskipa þungt högg fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Til vinstri má sjá skemmtiferðaskip á leið til hafnar í Borgarfirði eystri. vísir/samsett Yfirhafnarstjóri í Múlaþingi lýsir hruni í komum skemmtiferðaskipa og segir það þungt högg fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Skipafélög beini skipum sínum annað vegna hringlandaháttar í gjaldtöku.
Á síðasta ári komu tuttugu og fimm skemmtiferðaskip til Borgarfjarðar eystri en á næsta ári stefnir í að þau verði einungis níu eða tíu að sögn Rúnars Gunnarssonar, yfirhafnarstjóra hjá höfnum Múlaþings. Samdrátturinn sé svipaður á Djúpavogi; skipin hafi almennt verið um sextíu en á næsta ári verði þau þrjátíu og sex. „Þannig að þetta er alveg sláandi munur á bókunarstöðunni fyrir þessi ár,“ segir Rúnar. Skipakomur séu yfirleitt bókuðar með tveggja til þriggja ára fyrirvara og heildarfjöldinn sé því líklega kominn fram. Greint hefur verið frá því að skipakomum hafi fækkað víðar um landið eftir upptöku innviðagjalds. Í lok árs 2024 var tilkynnt um að leggja ætti 2.500 króna innviðagjald á hvern farþega en eftir mótmæli var ákveðið að lækka gjaldið í 1.600 krónur. Rúnar segir margar ástæður fyrir því að skipum hafi fækkað en að helst sé vísað í kringum gjaldtöku. „Fyrst og fremst er þetta hringlið hjá ríkisstjórninni með innviðagjald og skattfrelsi og virðisaukaskatt og annað slíkt, þetta sem er að dynja á skipunum með stuttum fyrirvara og þau bara treysta sér ekkert að taka þetta á sig þannig að þau fara. Skipin eru hreyfanleg og þau bara fara annað. Er það eitthvað sem þú beinlínis heyrir? „Já, þetta er bara það sem skipafélögin segja okkur.“ Rúnar bendir á að búið sé að byggja upp blómlega ferðaþjónustu á Borgarfirði eystri. Starfsemin byggi að miklu leyti á þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa.vísir/Vilhelm Rúnar segir íbúa á svæðinu áhyggjufulla og höggið þungt fyrir ferðaþjónustuna. „Ef við tökum bara sem dæmi Borgarfjörð eystri þar sem að er búið að byggja upp blómlega ferðaþjónusta, sem að stórum hluti bggir á þessum skemmtiferðaskipum.Þegar að þeim fækkar um helming að þá náttúrulega segir það bara sjálft að það er helmingi minni vinna í landi,“ segir Rúnar. „Það er það sama á Djúpavogi, þar er búið að byggja þessu upp mjög blómleg ferðaþjónusta sem þjónustar skemmtiferðaskipin. Og þetta þýðir náttúrulega bara minni vinnu fyrir þá sem að eru þarna á stöðvunum.“
Skemmtiferðaskip á Íslandi Ferðaþjónusta Múlaþing Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira