Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. september 2026 17:55 Tækniskólinn er til að mynda til húsa að Skólavörðuholti. Vísir/Arnar Nýbygging Tækniskólans verður ekki í Hafnarfirði líkt og stóð til eftir að bænum tókst ekki að afhenda skólanum lóðina sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Tækniskólans og Hafnarfjarðarbæjar. „Tækniskólinn og Hafnarfjarðarbær hafa undanfarin ár unnið að framtíðaruppbyggingu skólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði í samræmi við samkomulag við ríkið. Hafnarfjarðarbæ hefur ekki tekist að afhenda Tækniskólanum lóðina sem fyrirhuguð er undir skólann í tæka tíð og óvíst er hvenær af því getur orðið. Af þeim sökum hefur undirbúningur og hönnun nýbyggingarinnar þegar tafist um marga mánuði,“ segir í tilkynningunni. Þau hafi sammælst um að ekki væri svigrúm til frekari tafa á verkefninu og muni forsvarsmenn Tækniskólans því kanna aðra möguleika á framtíðarstaðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu. „Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn leggja áfram áherslu á gott samstarf og að næstu skref verði tekin með faglegum og farsælum hætti. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem þeirri vinnu miðar áfram.“ Árið 2021 var talið að framtíðarlausn á húsnæðisvanda Tækniskólans væri fundin þegar fulltrúar ríkisstjórnarinnar, bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og Tækniskólans undirrituðu viljayfirlýsingu um að byggja nýtt húsnæði við Suðurhöfn í Hafnarfirði. Þar samþykkti Hafnarfjarðarbær að leggja fram stofnfjárframlag frá bænum í formi lóðar án kvaða og gjalda ásamt beinu fjárframlagi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hafnarfjörður Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira