Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar 16. september 2026 18:02 Þegar við tölum um öryggi á vinnustað hugsum við gjarnan um það sem getur farið úrskeiðis. Við gerum áhættumat, setjum upp verklag, fræðum starfsfólk og reynum að koma auga á hættur áður en þær valda skaða. Ef slys verður skoðum við hvað gerðist, við styðjum við þá sem urðu fyrir áhrifum og reynum að draga lærdóm af því. Við bíðum ekki eftir slysinu til að byrja að hugsa um öryggi. En hvað með sálfélagslegt öryggi? Sjálfsvígsforvarnir eru sjaldan það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar rætt er um vinnuvernd. Samt verjum við stórum hluta vökutíma okkar í vinnunni og vinnuumhverfið getur bæði verið uppspretta álags og mikilvæg vernd í lífi okkar. Við skiljum nefnilega ekki líðanina eftir heima þegar við mætum í vinnuna. Vinnan getur bæði reynt á og verndað Sjálfsvíg eiga sér aldrei eina einfalda orsök, eitt tilfelli streitu leiðir til dæmis ekki til depurðar eða sjálfsvígshugsana, og það væri ragnt að draga beina línu frá álagi í vinnu yfir í sjálfsvíg. Við vitum hins vegar að langvarandi sálfélagslegt álag getur haft áhrif á andlega heilsu. Þannig sjáum við að mikið og viðvarandi vinnuálag, lítill sveigjanleiki eða stjórn á eigin starfi, langur vinnutími, vaktavinna, óöryggi, einelti og áreitni, skortur á stuðningi og félagsleg einangrun eru meðal þeirra þátta í vinnuumhverfi sem geta aukið álag og haft áhrif á líðan. Þess vegna eiga streitu- og álagsvarnir heima í umræðunni um sjálfsvígsforvarnir. Vinnan getur verið öflugur verndandi þáttur og góð vinnuvernd snýst um að fækka áhættuþáttum og fjölga verndandi þáttum áður en eitthvað fer úrskeiðis. Í mínu starfi hitti ég oft einstaklinga í mikilli vanlíðan sem upplifa að vinnan sé það sem heldur utan um daginn þeirra. Vinnan getur skapað rútínu, félagsleg tengsl, fjárhagslegt öryggi, hlutverk og tilgang. Þegar allt er á báli annars staðar í lífinu getur vinnustaðurinn jafnvel verið eini staðurinn þar sem viðkomandi upplifir að hann viti hvað hann á að gera, að hans sé þörf og að hann tilheyri. Það er því mikilvægt að við vanmetum ekki það hlutverk. Hverjir geta orðið ósýnilegir á vinnustaðnum? Sjálfsvígshugsanir hafa ekkert eitt útlit og við eigum að fara varlega í að búa til mynd af „manneskjunni í áhættu“. Sá sem glímir við mikla vanlíðan getur áfram mætt í vinnuna, sinnt verkefnum og virst hafa allt undir stjórn. Í vinnuvernd horfum við því ekki bara á einstaklinginn heldur horfum við líka á aðstæðurnar. Hver vinnur mikið einn eða er félagslega einangraður í starfi? Hver hefur verið undir miklu álagi lengi án raunverulegs svigrúms til endurheimtar? Hver vinnur óreglulegan eða mjög langan vinnutíma? Hver starfar við aðstæður þar sem áföll, ógn, dauðsföll eða miklar tilfinningalegar kröfur eru hluti af starfinu? Hver hefur smám saman dregist út úr hópnum? Markmiðið er ekki að finna „starfsmanninn í mestri sjálfsvígshættu” heldur að þekkja vinnuumhverfið okkar nógu vel til að sjá hvar álag getur safnast upp og hvar fólk getur orðið ósýnilegt. Menning sem gerir það auðveldara að segja frá Vinnustaður sem vill taka sjálfsvígsforvarnir alvarlega þarf því að gera meira en að bregðast vel við þegar einhver segir frá sjálfsvígshugsunum. Hann þarf að byggja upp umhverfi þar sem líklegra er að sagt sé frá fyrr. Það felur meðal annars í sér að greina og bregðast við sálfélagslegum áhættuþáttum, hafa skýrt verklag um streitu og langvarandi álag og huga að því hvernig tekið er á langtímafjarvistum og endurkomu til vinnu. Það þarf að vera ljóst hvaða stuðningur stendur starfsfólki til boða og hvernig hægt er að nálgast hann. Ekki bara þegar eitthvað alvarlegt gerist heldur áður en á reynir. Hér skiptir menningin sjálf máli. Er í lagi að segja „ég er ekki að ráða við þetta núna“? Getur fólk rætt vanlíðan án þess að óttast að litið verði á það sem óhæft eða veikburða? Tökum við eftir þegar einhver dregur sig út úr hópnum? Og vitum við hvað við eigum að gera þegar við höfum raunverulegar áhyggjur? Verklag þarf að vera skýrt og traust til þess þarf að ríkja í starfshópnum. Öryggismenning reynir líka á eftir að eitthvað gerist. Ef starfsmaður tekur eigið líf eða gerir tilraun til þess getur það haft mikil áhrif á vinnustaðinn. Samstarfsfólk getur upplifað sorg, áfall, sektarkennd, reiði eða velt því fyrir sér hvort það hefði átt að sjá eitthvað eða gera eitthvað öðruvísi. Þá þarf vinnustaðurinn aftur að hugsa eins og í annarri vinnuvernd: bregðast skipulega við, miðla upplýsingum af yfirvegun, veita stuðning, huga að þeim sem urðu sérstaklega fyrir áhrifum og styðja við endurkomu þegar það á við. Viðbrögðin eiga ekki að þurfa að verða til í miðri krísunni. Sjálfsvígsforvarnir eru líka vinnuvernd Góður vinnustaður getur ekki tryggt að enginn starfsmaður upplifi alvarlega vanlíðan. Hann getur ekki séð öll merki og hann getur ekki komið í veg fyrir öll sjálfsvíg. En hann getur haft áhrif á umhverfið sem fólk vinnur í. Vinnustaðurinn getur dregið úr óþarfa sálfélagslegu álagi, styrkt tengsl og tekið eftir því þegar fólk einangrast, gert stuðning sýnilegan og aðgengilegan og hann getur verið undirbúinn þegar eitthvað alvarlegt kemur upp. Fyrir suma er vinnan einfaldlega vinnan. Fyrir aðra getur hún, á erfiðasta tímabili lífsins, verið einn af fáum stöðum þar sem dagurinn hefur enn tilgang, þar sem einhver tekur eftir því hvort við mætum og þar sem við tilheyrum enn einhverju. Þegar við hugsum þannig um vinnuvernd verður sjálfsvígsforvörnum ekki lengur svo auðvelt að vísa út fyrir dyr vinnustaðarins. Við bíðum ekki eftir vinnuslysi til að byrja að huga að öryggi. Við ættum heldur ekki að bíða eftir krísunni til að byrja að huga að sálfélagslegu öryggi. Carmen Maja Valencia, sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd hjá Auðnast Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun