Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Lovísa Arnardóttir skrifar 17. september 2026 16:00 Rik og Ross í versluninni. Aðsendar Bræðurnir sem standa að baki hönnunarmerkisins Endurtakk opna á morgun nýtt verslunarrými á jarðhæðinni í Hlemmur.Haus að Laugavegi 114 þar sem Tryggingamiðstöðin var áður til húsa. Verslunarrýmið er rekið af bræðrunum Rik og Ross McNair. Undanfarin fimm ár hafa þeir rekið vörumerkið Endurtakk, sem framleiðir föt og fylgihluti úr endurnýttum textílefnum.
Í tilkynningu kemur fram að í 114 verði seld verk og vörur frá skapandi aðilum og vörumerkjum í Reykjavík. Þar verði meðal annars hægt að finna fatnað, textíl, skartgripi, leirlist, ilmvötn, listaverk og aðra muni. Margir þeirra sem selja verk sín í versluninni starfa jafnframt í vinnustofum í Hlemm.haus en þar geta skapandi aðilar leigt vinnurými. Í tilkynningu segir að um 80 prósent af því sem verður til sölu við opnunina sé framleitt í húsinu sjálfu. Rik segir að hugmyndin að verslunarrýminu hafi kviknað þegar tækifæri gafst til að flytja vinnustofu þeirra bræðra í neðra rými Hlemmur.Haus, þar sem afgreiðsla Tryggingastofnunar var áður til húsa. Um 80 prósent þeirra vara sem verða seldar í versluninni eru framleiddar í Hlemmur.haus. Aðsend Velja söluaðila og vörumerki sjálfir Samhliða flutningunum hafi hugmyndin að versluninni tekið að mótast. „114 er rými þar sem hlutir eru búnir til og í stöðugri þróun. Við vildum færa fólk nær fullunnu verkunum en líka fólkinu og sköpunarferlinu að baki þeim. Verslunin er sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna,“ segir Rik. Bræðurnir velja sjálfir þá aðila og vörumerki sem fá pláss í 114 og sjá um rekstur verslunarinnar. Þannig geta þátttakendur einbeitt sér alfarið að eigin vinnu. Að auki mun 114 standa fyrir námskeiðum, pop-up-viðburðum og lifandi uppákomum þar sem gestir fá innsýn í sköpunarferlið. Við opnunina verða vörur frá Elf.ancy, Katre Clay, Indigo Jewellery, Endurtakk, No No Yes Of Course, Ýrúrarí, Bosk, Studio CH, Magnea, Flöff, Hafmeyja, Ilmur og sjór, Sæberg Studio, Acid Habibi og Fözz Studio. Í tilkynningu segir um þá bræður að Rik hafi lært fatahönnun og fataframleiðslutækni í Glasgow og hafi síðustu tuttugu ár starfað fyrir ólíka hönnuði, einkum við framleiðslustjórnun og rekstur vinnustofa, auk sníðagerðar og vöruþróunar. Undanfarin fimm ár hefur hann rekið vörumerkið Endurtakk, sem framleiðir föt og fylgihluti úr endurnýttum textílefnum, ásamt Ross. Ross lærði rafmagnsverkfræði í Skotlandi áður en hann flutti til Íslands. Í heimsfaraldrinum kenndi Rik honum að sauma og í kjölfarið stofnuðu bræðurnir Endurtakk. Rik leiðir skapandi starf þeirra en Ross heldur utan um stjórnun og rekstur. Opnunarpartý verslunarinnar er á morgun frá klukkan 17 til 20 og er opið öllum.
Reykjavík Verslun Umhverfismál Tíska og hönnun Menning Mest lesið Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira