Sport

Flug­elda­sýning á frum­sýningu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Allt trylltist er Josh Allen, leikstjórnandi Bills, var kynntur til leiks á nýja vellinum.
Allt trylltist er Josh Allen, leikstjórnandi Bills, var kynntur til leiks á nýja vellinum. vísir/getty

Buffalo Bills spiluðu sinn fyrsta leik á nýjum og glæsilegum heimavelli í gær og frammistaða þeirra var frábær. Þeir völtuðu yfir Detroit Lions, 41-31, í mögnuðum leik.

Það var vel við hæfi að Josh Allen, leikstjórnandi Bills, skildi skora fyrsta snertimarkið á nýja Highmark-vellinum sem er hinum megin við götuna frá gamla vellinum.

Allen bauð síðan upp á ofurmannlega frammistöðu. Kastaði boltanum 248 jarda og þar af kastaði hann þrisvar fyrir snertimarki. Hann hljóp svo 69 jarda og skokkaði tvisvar í mark. Fimm snertimarka fimmtudagur hjá honum.

Hlauparinn James Cook líka geggjaður með 135 hlaupajarda og eitt snertimark. Frammistaða Keon Coleman vakti líka mikla athygli en hann greip allar sex sendingarnar sem hann fékk til sín fyrir 63 jördum. Það er búið að bíða eftir svona frammistöðu frá honum.

Bills komst í 21-0 í leiknum og Lions náði í raun aldrei að ógna. Það var ekki sókninni að kenna enda var hún frábær. Varnarleikurinn var aftur á móti hreinasta hörmung.

Leikstjórnandi Lions, Jared Goff, kastaði boltanum 327 jarda og þar af kastaði hann fyrir fjórum snertimörkum. Amon-Ra St. Brown greip tvær snertimarkssendingar og var með 142 gripna jarda.

Bills er búið að vinna fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu en Lions er með einn vinning.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×