Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Samúel Karl Ólason skrifar 21. september 2026 11:32 Blaðamönnum þriggja fjölmiðla var meinaður aðgangur að Hvíta húsinu á laugardaginn og passar þeirra teknir af þeim. Forsvarsmenn miðlanna hafa höfðað mál gegn Trump og þremur háttsettum starfsmönnum hans. AP/Jose Luis Magana Forsvarsmenn bandarísku fjölmiðlanna CNN, MSNOW og Politico, eru að höfða höfða mál gegn ríkisstjórn Donalds Trump. Er það í kjölfar þess að hann bannaði blaðamönnum miðlanna inngöngu í Hvíta húsið og á viðburði á vegum Hvíta hússins.
Í yfirlýsingu frá fjölmiðlunum segir að bannið sé klárt brot á fyrsta viðauka stjórnarskrár Bandaríkjanna og að það brjóti einnig gegn þeim grunngildum að stjórnvöld fái ekki að ákveða hvað fjölmiðlar fjalla um og hvaða fréttir þeir birta. Lögsóknin beinist sérstaklega að Trump sjálfum, Susie Wiles starfsmannastjóra hans, Steven Cheung samskiptastjóra Hvíta hússins og Sean Curran yfirmanni lífvarðasveitar forsetans. Fjölmiðlarnir þrír hafa sent út sameiginlega yfirlýsingu um lögsóknina. Alríkisdómari í Washington DC verður beðinn um að úrskurða í málinu og fara fjölmiðlarnir fram á að hann drífi sig. Joint statement from CNN, MS NOW and POLITICO: pic.twitter.com/ZBt2qioLD8— CNN Communications (@CNNPR) September 21, 2026 Þegar Trump lýsti banninu yfir sakaði hann blaðamenn miðlanna um að birta falsfréttir um sig. Að öðru leyti fór hann ekki ítarlega yfir það hvað umræddir blaðamenn hefðu gert af sér. Sjá einnig: Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Hann var svo seinna á föstudaginn spurður út í málið í Hvíta húsinu. Í fyrstu virtist hann ekki vita hvaða bann verið var að spyrja hann út í. Þá sagði hann meðal annars: „Ó, bannið gegn frjálsu fjölmiðlunum, rétt?“ Q: On the ban, what does that mean in practice? Are you taking away their badges, banning them from the pool?TRUMP: When you say 'the ban,' which ban? Do you know how many bans I'm involved in? I've got more bans going than any human being!Q: But what does it mean?TRUMP: I… pic.twitter.com/VPH2wCkF0n— Aaron Rupar (@atrupar) September 18, 2026 Þá bætti Trump því við að þetta væri uppsafnað. Hann væri orðinn gífurlega þreyttur á þessu stanslausa flæði falsfrétta, sem hann sagði að umræddir blaðamenn hefðu birt, þrátt fyrir að þeir vissu að fréttirnar væru rangar. Eins og fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar hefur ríkisstjórn Trumps farið í hart gegn og refsað þó nokkrum fjölmiðlum á kjörtímabilinu. Það á bæði við í dómsölum og gegnum reglugerð. Trump hefur einnig beitt sér gegn tilteknum blaðamönnum. Trump hefur áður meinað blaðamönnum AP aðgang að Hvíta húsinu og hleypt þar inn fjölmiðlafólki, bloggurum og áhrifavöldum sem þykja hliðhollir honum eða í það minnsta jákvæðari í garð hans. Í fyrri dómsmálum hafa dómarar á ýmsum stigum réttarkerfisins komist að þeirri niðurstöðu að þegar embættismenn opna dyr sínar fyrir blaðamönnum, sé þeim óheimilt að sigta úr hópnum tiltekna blaðamenn eða fjölmiðla sem þeim er illa við.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira