Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir og Ingólfur Bender skrifa 22. september 2026 17:02 Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) sýnir að hraður vöxtur í tækni- og hugverkaiðnaði hefur ekki aðeins skapað mikil útflutningsverðmæti heldur jafnframt stuðlað að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Greinin er orðin ein af fjórum meginstoðum útflutnings á Íslandi og stóð árið 2025 undir nær fimmtungi útflutningstekna þjóðarbúsins. Ávinningurinn nær því langt út fyrir fyrirtækin sjálf: sterkari tækni- og hugverkaiðnaður eflir undirstöður hagkerfisins og skapar forsendur fyrir betri lífskjörum landsmanna. Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hafa ríflega áttfaldast frá árinu 2008, eða farið úr 46 milljörðum króna í 369 milljarða árið 2025. Á sama tíma hefur hlutdeild greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbúsins aukist úr 7% í nær 19%. Verðmætasköpun greinarinnar til landsframleiðslu nam ríflega 440 milljörðum króna árið 2025 og þar störfuðu þá um 18 þúsund manns. Það sem greinir tækni- og hugverkaiðnað sérstaklega frá öðrum útflutningsstoðum er stöðugleiki. Greining SI sýnir að þetta hefur verið stöðugasta útflutningsstoð Íslands síðustu ár og að vöxtur hennar hefur dregið úr sveiflum í heildarútflutningi þjóðarbúsins um allt að 16% frá árinu 2008. Atvinnugreinin hefur þannig orðið mikilvægt mótvægi við sveiflur annars staðar í hagkerfinu og styrkt viðnámsþrótt þess gagnvart ytri áföllum. Þessi verðmætasköpun skilar sér jafnframt með beinum hætti til samfélagsins. Vítt skattspor tækni- og hugverkaiðnaðar nam 186 milljörðum króna árið 2024 og jókst frá fyrra ári. Stærstur hluti þrönga skattsporsins byggir á launatengdum gjöldum, einkum tekjuskatti og útsvari launþega, enda byggir greinin fyrst og fremst á sérhæfðum mannauði, mikilli framleiðni og vel launuðum störfum. Tekjurnar renna þannig í sameiginlega sjóði og styrkja fjármögnun þeirrar þjónustu og innviða sem samfélagið allt reiðir sig á. Áframhaldandi vöxtur er ekki sjálfgefinn Til að þessi ávinningur fyrir samfélagið haldi áfram að aukast þarf að tryggja að tækni- og hugverkafyrirtæki kjósi að byggja upp starfsemi sína hér á landi. SI hafa unnið markvisst að því að styðja við stjórnvöld til þess að bæta starfsskilyrði fyrirtækjanna, ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi og tryggja að Ísland geti keppt við önnur lönd á sviði fjárfestinga, að sækja sérfræðinga og tryggja fjárfestingu hér á landi í rannsóknum og þróun, sem er undirstaða tækni- og hugverkaiðnaðar. Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar hafa þar skipt miklu máli. Þeir hafa reynst öflugt tæki til að hvetja til fjárfestinga í rannsóknum, þróun og nýsköpun og átt mikilvægan þátt í uppbyggingu greinarinnar. Kerfið byggir á því að fyrirtækin sjálf taki ákvörðun um fjárfestingu í verkefnum sem eru líkleg til að skapa verðmæti og hið opinbera veiti stuðning með skattahvötum. Samkeppnin um slík verkefni er alþjóðleg. Fyrirtæki geta valið hvar þau byggja upp rannsóknar- og þróunarstarfsemi, ráða sérfræðinga og ráðast í nýjar fjárfestingar. Því þarf íslenskt starfsumhverfi að vera samkeppnishæft, fyrirsjáanlegt og að minnsta kosti jafn hvetjandi og í þeim ríkjum sem Ísland ber sig helst saman við. Þar skipta öflugir og fyrirsjáanlegir skattahvatar og nægt framboð sérhæfðs mannauðs lykilmáli. Efla þarf menntun í tækni- og vísindagreinum og greiða fyrir aðgengi fyrirtækja að erlendum sérfræðingum. Tækni- og hugverkaiðnaður hefur alla burði til að verða verðmætasta útflutningsstoð Íslands fyrir lok þessa áratugar ef rétt er á málum haldið. Það er ekki aðeins tækifæri fyrir fyrirtækin í greininni heldur fyrir þjóðarbúið allt. Aukinn útflutningur sem byggir á hárri framleiðni og þar með fjölgun verðmætra starfa skapa sterkari tekjustofna fyrir ríkið, meiri efnahagslegan stöðugleika og betri lífskjör til framtíðar. Vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar er því ekki hagsmunamál einnar atvinnugreinar. Hann er sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Með því að tryggja áframhaldandi skilyrði til vaxtar styrkjum við undirstöður hagkerfisins og getu samfélagsins til varðveita góð lífskjör. Ávinningurinn er okkar allra. Erla Tinna er viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins og Ingólfur er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun