Innlent

Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Maðurinn starfaði á leikskóla á Akranesi.
Maðurinn starfaði á leikskóla á Akranesi. Vísir

Mál karlmanns sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega á leikskólabarni á Akranesi er komið á borð ákærenda. Málið kom upp fyrr á árinu.

Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Málið kom á borð ákæranda þann 14. september og er hans hlutverk að taka ákvörðun um hvort lögð verði fram ákæra í málinu. 

Þann 17. mars var ungur karlmaður handtekinn á Akranesi grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni á leikskólanum Garðaseli. Honum var í kjölfarið vikið úr starfi á meðan málið var í rannsókn. Maðurinn er ekki frá Akranesi og hafði ekki starfað lengi á leikskólanum þegar málið kom upp.

Honum var sleppt úr haldi skömmu síðar og gengur frjáls. Lögreglan lauk rannsókn sinni þann 22. maí og fór málið þá til héraðssaksóknara.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×