„Höfum aldrei átt betra samband“ Smári Jökull Jónsson skrifar 25. september 2026 06:33 Trump heilsar Xi fyrir ræðu þess síðarnefnda í gær. Vísir/Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti bauð Xi Jinping, forseta Kína, til veglegrar kvöldverðarveislu í Hvíta húsinu í gær þar sem báðir leiðtogar lofuðu nýtt og betra samband ríkjanna. Á sama tíma söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan hlið Hvíta hússins og voru nokkrir þeirra handteknir.
Veislan var haldin á öðrum degi þriggja daga heimsóknar Xi til Washington og á meðal gesta voru auðjöfrar, ráðherrar úr ríkisstjórn Trumps, forstjórar bandarískra tæknifyrirtækja og fleiri áhrifamenn. Trump þakkaði Xi fyrir að leggja á sig langt ferðalag til Bandaríkjanna og sagði samband þeirra tveggja sterkt. „Við höfum aldrei átt betra samband," sagði Trump og fór jafnframt út fyrir handritið til að hrósa byggingu nýs danssals við Hvíta húsið, sem enn á eftir að ljúka við. Bauð hann meðal annars Xi og eiginkonu hans að verða fyrstu gestirnir til að stíga inn í salinn, þó framkvæmdir standi enn yfir.. Forsetinn afhenti einnig Xi stóra höggmynd af haferni, þjóðartákni Bandaríkjanna, og sagði hana tákna frjálsan anda Ameríku. Hann bað um að höggmyndin fengi góðan stað í Peking og að hann og Melania forsetafrú hefðu tekið þátt í hönnun hennar. Gullhömrunum rigndi Xi sagði móttökur gestgjafanna hafa látið hann og eiginkonu hans finnast þau vera heima hjá sér. Hann sagði leiðtogana tvo vera að skrifa sögu í samskiptum ríkjanna og að þeir hefðu sammælst um að byggja upp uppbyggilegt og stöðugt samband Kína og Bandaríkjanna. Xi sagði samræður þeirra hafa verið einlægar og ítarlegar og að þær myndu styrkja tengsl ríkjanna. Líkt og hjá Trump einkenndust orð Xi af miklu hrósi, og lagði hann áherslu á menningartengsl og sameiginlega sögu ríkjanna. Hann rifjaði upp að samband ríkjanna hefði verið smíðað í baráttunni gegn Japan í seinni heimsstyrjöldinni, áður en það styrktist enn frekar á tímum Nixon-stjórnarinnar. Í lok ræðu sinnar sagði Xi að markmið ríkjanna gætu styrkt hvort annað og hvatti bæði ríkin til að finna nýja nálgun í samskiptum stórvelda. Sérfræðingar segja lítið hafa breyst í raun Þrátt fyrir mikið lof leiðtoganna í garð hvor annars benda sérfræðingar á að fá áþreifanleg tíðindi hafi komið út úr viðræðum ríkjanna hingað til. Meðal gesta voru fjölmargir forstjórar úr tækniheiminum, þar á meðal Tim Cook frá Apple, Sam Altman frá OpenAI, Sundar Pichai frá Google, Jeff Bezos frá Amazon og Jensen Huang frá Nvidia. Mark Zuckerberg, stofnandi Meta, var einnig viðstaddur sem og Jeff Yass, bandarískur milljarðamæringur sem á hlut í TikTok. „Allir vildu vera þarna," sagði Trump fyrir veisluna. „Ég myndi segja að þið hafið allan tækniheiminn, allan bankaheiminn og margt fleira."
Kína Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Frægt fólk meðal handtekinna í New York Erlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent Fleiri fréttir Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Sjá meira