Samrunanum ætlað að renna fleiri stoðum undir Bláa lónið utan Svartsengis
Fyrirhugaður samruni Bláa Lónsins og Arctic Adventures á meðal annars að renna styrkari stoðum undir áform um skráningu ferðaþjónusturisans í Kauphöll og draga úr rekstraráhættu sem tengist jarðhræringum í Svartsengi. Stjórnendur félaganna telja „nauðsynlegt“ að ná fram meiri stærðarhagkvæmni í íslenskri ferðaþjónustu.
Tengdar fréttir
Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað
Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað.
Hundrað milljarða ferðaþjónusturisi verður til samhliða skráningu á markað
Stjórnendur Bláa lónsins og Arctic Adventures stefna að sameiningu fyrirtækjanna, sem myndi búa til risa í íslenskri ferðaþjónustu með hlutafjárvirði upp á samtals yfir hundrað milljarða, samhliða áformum um skráningu á markað síðla hausts þar sem ætlunin er að sækja mögulega meira en tíu milljarða. Miðað við fyrirhuguð skiptihlutföll í samrunanum þá munu Stoðir, stór eigandi í báðum félögum, verða annar umsvifamesti hluthafinn með nærri fimmtán prósenta hlut.
Sjóðir Stefnis byggja upp stöðu í Bláa lóninu í aðdraganda skráningar
Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir hefur nýlega fest kaup á drjúgum eignarhlut í Bláa lóninu, sennilega verðmætasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, en stjórnendur og aðaleigendur félagsins vinna nú að undirbúningi við skráningu á markað sem stefnt er að næstkomandi haust.
Beinn kostnaður Bláa lónsins vegna jarðhræringa nálgast um átta milljarða
Lokanir og truflanir vegna ítrekaðra jarðhræringa á Reykjanesskaga frá árslokum 2023 hafa valdið beinum kostnaði fyrir Bláa lónið sem nemur samtals um sjö til átta milljörðum króna, einkum vegna tapaðra tekna og greiddra launa á tímum þegar reksturinn hefur stöðvast. Stjórnarformaður Bláa lónsins segir blikur á lofti varðandi þróun ferðaþjónustunnar á heimsvísu, sem muni að líkindum þýða fækkun ferðamanna til Íslands á þessu ári, og gagnrýnir ráðamenn þjóðarinnar fyrir umræðu sem einkennist alltof oft af því hvernig megi skattleggja atvinnuvegina frekar.
Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum
Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum.