Innlent

Sex­tán ára ung­lingar sóttir í bæinn eftir af­skipti lög­reglu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Lögregluþjónar að störfum í miðbænum.
Lögregluþjónar að störfum í miðbænum. Vísir/Vilhelm

Skemmtistað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu um tvöleytið í nótt vegna fjölda ungmenna sem höfðu safnast þar saman.

Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglu hefðu borist vísbendingar um að fjöldi fólks undir aldri væri á þessum tiltekna stað.

„Þegar lögregla kemur inn og fer að hafa afskipti af ungmennunum yfirgefa þau flest staðinn mjög fljótt,“ segir hann.

Sex ungmennum var komið í samband við foreldra sína sem komu að sækja þau.

Um allt að sextán ára unglinga hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×