Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Aron Guðmundsson skrifar 27. september 2026 16:48 Kári Árnason og byrjunarlið Íslands í leiknum í gær Vísir/Samsett Kári Árnason, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður Íslands í fótbolta gagnrýndi orkustigið í leik íslenska landsliðsins í jafntefli gegn Eistlandi í gær. Hann spyr sig hvers vegna menn sína ekki jafn mikinn anda og baráttu eins og má sjá í Instagram myndböndum frá æfingu liðsins.
Ísland gerði 1-1 svekkjandi jafntefli við Eistland í C-deild Þjóðadeildarinnar á heimavelli í gær. Slæm úrslit í upphafi keppni þar sem að íslenska landsliðið ætlar sér að toppa sinn riðil sem inniheldur einnig landslið Búlgaríu og Lúxemborg. Leikur íslenska liðsins var slæmur, sóknarleikurinn sér í lagi ekki til útflutnings og þá voru sérfræðingar Sýn Sport ekki ánægðir með orkustig leikmanna. Klippa: Orkulaust og flatt íslenskt landslið Aðspurður hvort það væri ærið verkefni núna fyrir þjálfarateymið að koma liðinu og spilamennskunni á réttan kjöl fyrir næsta leik á þriðjudaginn gegn Lúxemborg ytra sagði Kári svo vera. „Það verður að auka orkustigið. Þetta er flatt,“ sagði Kári. „Maður sér Instagram-vídeó af æfingum og þá er mikill hiti og menn alveg að láta hvorn annan finna fyrir því. Einu skiptin sem við fögnum í þessum leik og erum að hvetja er bara þegar Hákon er að bjarga liðinu.“ Það séu hægt að hvetja menn áfram ef að eitthvað er gott. „Fá smá anda í þetta en það er ekki fyrr en Gylfi kemur inn á að þetta byrjar. Þá er hann að öskra á menn. Það vantar bara pínu líf í þetta.“ Flatneskjan á liðinu var of mikil að mati Bjarna Guðjónssonar, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanns sem var með Kára og Kjartani Atla í settinu eftir leik „Það er fullt satt sem Arnar er að segja og rétt sem hann segir: Þeir fylla boxið vel. En þeir fylla boxið svo hægt. Á meðan þú fyllir sóknarboxið þitt hægt, hvað gerist þá með lið andstæðinganna? Þeir fylla boxið líka. Það bara verður traffík í boxinu. Svo eru fyrirgjafirnar, ekki að koma á réttu tempói. Of margar snertingar á boltanum þannig að hlaupin verða erfiðari. Takturinn sóknarlega er ekki alveg að virka og svo það sem verra er að þegar takturinn er ekki í lagi sóknarlega, er ekki í lagi varnarlega, þá er þetta það sem þú færð. Færð ekki úrslit og þú nærð ekki í sigra. Við þurfum þrjú mörk til þess að vinna leiki af því við fáum alltaf rúmlega tvö mörk á okkur í hverjum leik.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira