Viðskipti innlent

Rúm­lega tuttugu sagt upp hjá ÍAV

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Forstjóri ÍAV segir uppsagnirnar hafi aðallega beinst að iðnaðarmönnum fyrirtækisins. Myndin er úr safni.
Forstjóri ÍAV segir uppsagnirnar hafi aðallega beinst að iðnaðarmönnum fyrirtækisins. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri.

„Við höfum verið að fækka töluvert. Bæði hefur verið minna að gera og svo erum við erum bara að endurskipuleggja reksturinn okkar,“ segir Þóroddur Ottesen Arnarson, forstjóri ÍAV.

Alls hafi rúmlega 20 manns verið sagt upp störfum en Þóroddur gat ekki gefið nákvæma tölu þeirra. Uppsagnirnar hafi aðallega haft áhrif á iðnaðarmenn, svo sem rafvirkja, pípara og smiði.

Um tvö hundruð manns starfi hjá fyrirtækinu og því hafi um tíu prósentum starfsmanna þess verið sagt upp. Því hafi fyrirtækinu borið skylda til þess að tilkynna hópuppsögn til Vinnumálastofnunar að sögn Þórodds.


Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.


„Við erum að hætta ákveðinni starfsemi þar sem við vorum að sinna smærri verkefnum, þjónustuverkefnum og öðru slíku. Við höfum verið að draga verulega saman í því,“ segir Þóroddur um ástæður uppsagnanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×