Á spítala eftir misheppnaða aftöku Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 1. október 2026 07:06 Myndin er tekin af Christu Pike í janúar árið 2023. Vísir/AP Tilraun til aftöku bandarískrar konu, sem var dæmd til dauða í Tennessee fyrir manndráp árið 1996, mistókst í gærkvöldi þegar hún lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk.
Christa Pike var átján ára þegar hún, ásamt kærasta sínum, misþyrmdi og drap hina 19 ára Colleen Slemmer árið 1995. Hún hefur setið í fangelsi síðan og beðið aftöku sinnar. Lögfræðiteymi Pike óskaði eftir því að aftakan yrði stöðvuð þegar ljóst var að hjarta hennar sló enn, þrátt fyrir að hún hefði misst meðvitund, og einnig hraut hún hátt og skýrt. Pike var flutt á sjúkrahús og veitt lífsbjargandi meðferð. Samkvæmt AP-fréttaveitunni fór tilraunin til aftöku fram í Riverbend-fangelsinu í Nashville um klukkan átta að staðartíma. Hin dæmda fékk tvo skammta Pentobarbital, en það er öflugt lyf sem deyfir miðtaugakerfið. Fjöldi sem er andvígur aftökum safnaðist saman fyrir utan fangelsið þegar aftakan átti að fara fram. Vísir/AP Standa við allar sínar aðgerðir „Fangelsisyfirvöld í Tennessee fylgdu hverju skrefi í lögmætu og staðfestu aftökuferli ríkisins, sem samþykkt hefur verið af embætti ríkissaksóknara,“ sagði Dorinda Carter, talskona fangelsisyfirvalda, við dagblaðið Tennessean. Móðir Slemmer, May Martinez, lýsti því í viðtali við AP um helgina að hún hefði lengi beðið eftir aftökunni. „Í hvert skipti sem ég hugsa um þetta hugsa ég um Colleen sem fann fyrir þessum sársauka og reyndi að standa upp og hlaupa í burtu,“ sagði Martinez við Associated Press. Hún bætti við: „Það líður ekki dagur, ekki ein mínúta, sem ég hugsa ekki um Colleen. Hátíðirnar eru verstar.“ Brotið á rétti Pike Í frétt Guardian segir að lögmenn Pike hafi lýst því að aftakan hafi breyst í pyntingu og að þau teldu brotið á rétti hennar til að vera tekin af lífi án grimmilegrar og óvenjulegrar refsimeðferðar. Í frétt BBC segir að aftakan hafi farið fram eftir að lögfræðingar hennar gerðu margar tilraunir til að fresta henni. Ríkisstjóri Tennessee hafnaði í þessari viku beiðni Pike um náðun. Pike er eina konan sem situr á dauðadeild í Tennessee og sú fyrsta sem á að taka af lífi í um 200 ár. Andlega veik Í beiðni sinni um náðun sagði Pike að hún hefði ætlað að berja Slemmer en ekki myrða hana, en að hún hefði ekki getað „stigið á bremsuna“. „Ég var andlega veik átján ára stelpa,“ sagði hún í yfirlýsingu. „Það tók mig mörg ár að átta mig yfirhöfuð á alvarleika þess sem ég hafði gert. Enn lengri tíma tók að sætta mig við hversu mörg líf ég hafði haft áhrif á. Ég tók líf barns, systur og vinkonu einhvers. Mér verður illt við tilhugsunina núna um að ég hafi haft getu til að fremja slíkan glæp.“ Myndum af Colleen Slemmer var stillt upp fyrir utan Riverbend öryggisfangelsið þegar aftakan átti að fara fram. Vísir/AP Morðið árið 1995 vakti mikla athygli. Í frétt Guardian segir að fram hafi komið í réttarhöldum að Pike hafi óttast að Slemmer væri að reyna að stela þáverandi kærasta hennar, Tadaryl Shipp, frá henni. Þau lokkuðu Slemmer saman inn á skógi vaxið svæði þar sem Pike skar Slemmer í kvið og háls með hnífi áður en hún mölvaði höfuð hennar með steini. Þegar Slemmer fannst hafði verið rist fimmhyrnda stjarna, pentagram, á brjóstkassa hennar en Pike hefur ávallt neitað að hafa gert það. Pike og Shipp voru bæði dæmd til fangelsis en hann í lífstíðarfangelsi með möguleika á reynslulausn.
Bandaríkin Dauðarefsingar Erlend sakamál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira