Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Smári Jökull Jónsson skrifar 1. október 2026 16:01 Kjósandi greiðir atkvæði í Virginíu. Þingkosningarnar í Bandaríkjunum fara fram þann 3. nóvember næstkomandi. Vísir/Getty Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum.
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa gert í allt sumar, að demókratar séu mun duglegri að mæta á kjörstað. Í nokkrum ríkjum þar sem fram undan er mikilvæg kosning til öldungadeildar eða ríkisstjóra er hlutfall Demókrata í beiðnum um kjörseðla stærra en þegar forsetakosningarnar fóru fram árið 2024. I Iowa hefur 67 prósent beiðna komið frá Demókrötum samanborið við 54 prósent fyrir fjórum árum og svipaða sögu er að segja í Pensylvaníu, Maine og Norður-Karólínu. Þessi þróun er sú sama og niðurstöður kannana, aukakosninga og þátttaka í forkosningum hefur sýnt. Önnur skýring gæti þó verið sú að Repúblikanar kjósi í auknum mæli að greiða atkvæði á kjördag. Augljós fylgni Þá kemur fram í frétt CNN að kosningahegðun Bandaríkjamanna hafi breyst eftir að kórónuveirufaraldrinum lauk. Dregið hefur úr póstatkvæðagreiðslu en hlutur þeirra sem eru eldri en 65 ára gamlir hefur vaxið. Var hann 27 prósent árið 2020 en hafði aukist um tíu prósent fjórum árum síðar. Flest atkvæðin í ár hafa verið greidd í Virginíu og þar hafa fjölmargir greitt atkvæði bæði í eigin persónu og í pósti. Greinilegt samband er á milli þess hvernig ákveðið svæði kaus árið 2024 og hversu duglegt fólk hefur verið að kjósa í ár. Í borgum og sýslum þar sem Kamala Harris vann með meira en tuttugu prósentustigum árið 2024 hefur þátttakan náð 78 prósentum samanborið við 61 prósent þar sem Donald Trump vann með jafn miklum mun. Gæti skýrt áhugaleysi Repúblikana Sérfræðingar benda þó á að enn sé margt sem eigi eftir að gerast. Keppnin um öldungadeildarsætið í Virginíu er til að mynda ekki talin jöfn og því gæti áhugi Repúblikana verið meiri í þeim ríkjum þar sem meira er í boði. Þar að auki ríkir að sjálfsögðu leynd yfir því hvernig fólk kýs, aðeins er opinbert hverjir hafa kosið. Atkvæðin sem eru komin í hús eru aðeins brot af þeim 57 milljónum sem voru greiddar fyrir kjördag í þingkosningunum 2022 og enn minna brot af þeim 112 milljónum sem kusu alls. Búist er við að atkvæðafjöldinn aukist verulega á næstu vikum.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Repúblikanar eru byrjaðir að verja fúlgum fjár í auglýsingar í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þeir sitja á mun digrari sjóðum en Demókratar. Forsetinn sjálfur situr á rúmum fjögur hundruð milljónum dala í pólitískri aðgerðanefnd sinni og er byrjaður að beita honum til að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins. 22. september 2026 08:50 Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Bæði Repúblikanar og Demókratar eru að dæla milljörðum í kosningabaráttuna um annað öldungadeildarsæti Texasríkis. Repúblikanar hafa áhyggjur af því að missa sætið, sem hefur verið í höndum þeirra um árabil, og Demókratar sjá tækifæri til að ná mögulega meirihluta í öldungadeildinni. 25. september 2026 22:46 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Repúblikanar eru byrjaðir að verja fúlgum fjár í auglýsingar í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þeir sitja á mun digrari sjóðum en Demókratar. Forsetinn sjálfur situr á rúmum fjögur hundruð milljónum dala í pólitískri aðgerðanefnd sinni og er byrjaður að beita honum til að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins. 22. september 2026 08:50
Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Bæði Repúblikanar og Demókratar eru að dæla milljörðum í kosningabaráttuna um annað öldungadeildarsæti Texasríkis. Repúblikanar hafa áhyggjur af því að missa sætið, sem hefur verið í höndum þeirra um árabil, og Demókratar sjá tækifæri til að ná mögulega meirihluta í öldungadeildinni. 25. september 2026 22:46