Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. október 2026 12:24 Ásdís og Aniella Lóa eru búesttar í Frakklandi. EPA/Aðsend Aniella Lóa, dóttir Ásdísar Ólafsdóttur listfræðings, varð fyrir táragasi þegar hún sótti stúdentamótmæli í Frakklandi. Töluverð harka er komin í mótmæli menntaskólanema sem krefjast bætinga á skólaumhverfinu. „
Það er dálítið sérstök stemning hérna í París og Frakklandi,“ segir Ásdís í samtali við fréttastofu. Nemendur í yfir þúsund menntaskólum í Frakklandi hafa tekið þátt í mótmælunum sem hófust fyrr í september í úthverfi Parísar en hafa dreift sér um allt land. 65 eru slasaðir, þar á meðal fjörutíu kennarar, og tæplega tvö þúsund hafa verið handteknir. Vegatálmar voru settir upp á sumum stöðum, kveiktir hafa verið eldar og verulegt tjón hefur orðið á skólabyggingum. „Það var niðurskurður í fjárveitingu til menntamála, bekkir eru yfirmannaðir, það vantar kennara, það vantar heilbrigðisstarfsfólk og ýmislegt sem þau hafa verið að biðja um.“ Alla jafna séu 35 nemendur í hverjum bekk og er ef til vill einn hjúkrunarfræðingur sem sinnir tíu fjölmennum menntaskólum. Í myndskeiðum sem hafa verið birt á samfélagsmiðlum af nemendum og kennurum kemur fram að ekki séu nægilega margir stólar eða borð í hverri kennslustofu, engir forfallakennarar séu til staðar svo að kennslustundir falla niður í fleiri mánuði og sé skólabyggingin afar illa farin. Unga fólkið hefur einnig áhyggjur af framtíð sinni þar sem það sé flókið og erfitt ferli að sækja um háskóla eða framhaldsnám. Mótmælin voru fyrst um sinn friðsamleg og gengu út á það að nemendur komu í veg fyrir að hægt væri að fara inn í skólann. Settar voru ruslafötur eða aðrir hlutir fyrir hurðarnar. Ásdís segir síðan allt hafa farið í háaloft og tók lögreglan að koma fylgjast með mótmælunum. Töluverð harka er komin í mótmælin.EPA „Lögreglan kom líka strax á staðinn og var oft dálítið brútal gagnvart skólanemendum, beitti táragasi og handtók fullt af fólki. En svo virðist vera dálítið mikið af ungu fólki sem tengist ekki skólunum en kemur gagngert til þess að hjóla í lögregluna og eyðileggja,“ segir hún. Eiginmaður og dóttir fyrir táragasi Aniella Lóa er fjórtán ára og í fyrsta bekk í menntaskóla. „Skólinn hennar var lokaður en hún fór samt á staðinn og þar var lögreglan. Þeir beittu táragasi á alla sem þar voru, meira að segja þótt þeir væru mjög friðsamlegir og bara að fylgjast með,“ segir Ásdís. Aniella varð þrisvar sinnum fyrir táragasi lögreglunnar. Kennarar við skólana og foreldrar hafa einnig slegist í hópinn, sér í lagi til að vernda nemendurna fyrir ofbeldi. Daginn eftir fór eiginmaður Ásdísar, sem er bæjarfulltrúi og menntaskólakennari, einnig að skólanum með Aniellu í því skyni að stilla til friðar. Þar mætti þeim harkan. „Þannig að þau fengu líka á sig táragas. Þannig að þetta er dálítið erfitt ástand núna.“ Ásdís tekur undir að Frakkar séu almennt duglegir að mótmæla en viðbrögð beggja hliða í mótmælunum séu töluvert ýktari en áður.
Frakkland Skóla- og menntamál Íslendingar erlendis Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira