Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Birgir Olgeirsson skrifar 2. október 2026 14:11 Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ágreining stjórnar Landsvirkjunar og Harðar Arnarsonar ekki snúast um arðgreiðslur. Anton Brink Stjórn Landsvirkjunar nýtur áfram trausts fjármálaráðherra þrátt fyrir ágreining hennar við Hörð Arnarson, fráfarandi forstjóra. Ráðherrann segir þær skýringar sem hann hafi fengið á ágreiningnum vera almenns eðlis en telur fulla ástæðu til að yfirfara málið.
Hörður tilkynnti í gær að hann myndi láta af störfum eftir sautján ár sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur tímabundið við starfinu 1. nóvember. Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður sagði í samtali við Vísi í gær að stjórnin og Hörður hefðu ekki alltaf verið sammála um allt. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ræddi málið við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Um þær skýringar sem hann hafi fengið frá stjórninni segir hann: „Ekki nema þetta sé almenns eðlis og snúi ekki að neinum einstökum atriðum eða einstökum ákvörðunum.“ Spurður hvort hann muni óska eftir fundi með stjórninni eða stjórnarformanninum til að fá nánari skýringar svarar Daði: „Ég held að það sé full ástæða til að yfirfara það. Það er líka mjög mikilvægt að halda því til haga að Hörður Arnarson hefur lyft grettistaki í rekstri þessa fyrirtækis og íslenska þjóðin getur verið mjög þakklát fyrir að hann hafi varið þessum tíma í að stýra Landsvirkjun, sem hann hefur gert með mjög farsælum hætti.“ Segir deiluna ekki snúast um arðgreiðslur Í viðtalinu var borið undir Daða hvort ágreiningurinn hefði snúist um hversu mikinn arð Landsvirkjun ætti að greiða ríkissjóði. „Deilan snýst ekki um það og arðgreiðslustefna var sett fyrir Landsvirkjun í vor og ég veit ekki betur en að það hafi verið gert í fullu samráði við fyrirtækið og þetta var raunar hluti af breytingu sem gerð var hjá öllum ríkisfyrirtækjunum á sama tíma.“ Að sögn Daða er arðgreiðslustefnan hönnuð þannig að hún skerði ekki framkvæmdagetu fyrirtækisins. Við mótun hennar hafi verið tekið tillit til fjárfestinga orkufyrirtækjanna og þess hvernig þau fjármagna starfsemi sína. „Það sem er einfaldlega verið að skerpa á er að það er ekki til neitt sem heitir ókeypis fjármagn. Og fjármagn sem íslenska ríkið og þar með íslenskur almenningur leggur inn í þessi fyrirtæki kostar að sjálfsögðu. Og þess vegna er mjög mikilvægt að það séu heilbrigðir, eðlilegir viðskiptahvatar inni í þessum fyrirtækjum þannig að þau séu rekin vel.“ Stjórnin njóti áfram trausts Daði hafnar því að ágreiningurinn stafi af því að stjórn Landsvirkjunar sé að framfylgja óskum hans sem Hörður sé ósáttur við. Hann segir almenna eigendastefnu ríkisins liggja til grundvallar stefnumótun stjórna ríkisfyrirtækja. Sjálfur fundi hann almennt með þeim um tvisvar á ári til að fara yfir reksturinn og hafi gert það með stjórn Landsvirkjunar líkt og stjórnum annarra fyrirtækja. Stjórnirnar eigi að gæta hagsmuna íslensku þjóðarinnar og forstjórar starfi í umboði þeirra. Daði telur ekkert óeðlilegt við að ólíkar áherslur stjórnar og forstjóra geti leitt til ákvarðana um breytingar. Aðspurður hvort stjórn Landsvirkjunar njóti áfram trausts hans svarar hann játandi.
Landsvirkjun Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Orkumál Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira