Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Agnar Már Másson skrifar 2. október 2026 19:50 Vegagerðin segir að um villu sé að ræða. Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri í Hornafirði sem sést hér á mynd, hyggst ræða við Vegagerðina um málið. Samsett Mynd Íbúar í Hornafirði og nærsveitum ráku upp stór augu þegar villa hjá Vegagerðarinni olli því að ökumenn voru ofrukkaðir fyrir veggjöld yfir nýjan veg yfir Hornafjarðarlón.
Reikningar hrönnuðust inn á heimabanka íbúa og einn íbúi sem Vísir ræddi við fékk rukkanir upp á tæplega hálfa milljón króna samtals, meðal annars fyrir ferðir sem voru eknar áður en gjaldtakan tók gildi. Vegagerðin segir að um villu sé að ræða og að nýir reikningar verði sendir í næstu viku og biðlar til vegfarenda að greiða ekki þá veggjaldsreikninga sem bárust í dag. Sveitarstjóri Hornafjarðar segir að gjaldskráin sé samt stórgölluð til að byrja með. Hámarksgjald fyrir lítinn fólksbíl um 19 þúsund Í júní opnaði Vegagerðin fyrir umferð um nýja brú yfir Hornafjarðarfljót en gjaldtaka á veginum átti ekki að hefjast fyrr en í september. Um mánaðamótin stóð því til að fyrstu reikningarnir til eigenda þeirra ökutækja sem farið höfðu um veginn og virðist mörgum hafa brugðið þegar þeir opnuðu heimabankann í dag. Rukkanirnar voru talsvert fleiri en búist var við. Kona í Hornafirði vakti athygli á því á íbúasíðu Hornfirðinga á Facebook að hún hefði fengið fjórar rukkanir upp á samtals 35 þúsund krónur þrátt fyrir að hafa aðeins farið sex ferðir yfir nýja veginn. Annar virðist hafa fengið fjórar greiðslur sem samtals námu 65 þúsund krónum. Einn íbúi í Svietarfélaginu Hornafirði sagðist hafa fengið rukkun upp á 35 þúsund krónur fyrir sex ferðir.Facebook Þetta hefur vakið furðu meðal íbúa enda kemur fram á vef Spalar ehf., sem sér um veggjaldainnheimtu, að hámarksgjald á mánuði sé 18.750 krónur fyrir smærri ökutæki (<3,5 tonn) og um 26.250 fyrir millistór ökutæki (3,5 – 7,5 tonn). Fyrir þyngri ökutæki eru greiddar 4.500 krónur á hverja ferð. Annar íbúi fékk rukkun upp á 65 þúsund krónur samtals.Facebook Rukkanirnar hrönnuðust inn Sæmundur Jón Jónsson, íbúi í Hornafirði, er einn þeirra sem segjast hafa fengið óvenjumargar rukkanir í heimabankann. „Það byrjuðu í morgun að birtast rukkanir í heimabankanum og þeim fjölgaði alltaf og fjölgaði,“ sagði Sæmundur þegar Vísir ræddi við hann um hálfsjöleytið í kvöld en þá hafði hann fengið tíu rukkanir upp á 46 þúsund krónur – samtals um 460 þúsund krónur. Sæmundur Jón Jónsson Hornfirðingur. Hornfirðingurinn segist ekki átta sig á því hvers vegna hann hafi fengið svona margar rukkanir og er heldur ekki viss hvort sú upphæð sem hann er krafinn um sé rétt. Þegar Sæmundur hefði gáð inn á vefsíðu Spalar til að skoða fjölda bílferða sem fjölskyldan hefði ekið hefði hann tekið eftir því að bílferðir væru skráðar alla leið aftur til 23. ágúst, þrátt fyrir að gjaldtaka hefði ekki átt að hefjast fyrr en 1. september. „Kannski er þetta einhver villa í tölvukerfi hjá þeim,“ segir Sæmundur. Bilun í kerfi Vegagerðarinnar G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að villa hafi valdið þessum ofrukkunum. „Við vorum að keyra fyrstu færsluna í þessu og það kom upp villa, þannig að við erum að hætta við að keyra hana út. Það fóru einhverjir reikningar út og hafa eitthvað verið rangir. Við förum yfir þetta og það verður ekki keyrð ný færsla fyrr en á mánudaginn,“ segir hann og tekur fram að enginn verði ofrukkaður. „Alls ekki fara að borga einhverja vitlausa reikninga,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.Vísir/Einar Þeir sem hafa verið ofrukkaðir þurfa því ekki að greiða þá reikninga sem þeim bárust í dag. „Alls ekki fara að borga einhverja vitlausa reikninga, en þetta verður lagað hratt og örugglega.“ Segja veggjaldið dýrt og afsláttarkerfið „stórgallað“ Gremja Hornfirðinga og annarra sem þurfa að aka veginn títt snýr að sögn Sæmundar ekki aðeins að þessari ofrukkun, heldur segir hann að margir hafi lýst vonbrigðum yfir því að veggjaldið yfir nýju brúna sé dýrt. „Okkur finnst allt í lagi að borga eitthvað fyrir þetta en 1.500 krónur á hverja ferð og svo átján þúsund á hvern bíl finnst okkur svolítið mikið,“ segir Sæmundur um gjaldskrána og bendir á að stök ferð yfir nýju Ölfusárbrúna sé fyrirhuguð um 500 krónur. Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri í Hornafirði, segist ætla að ræða við Vegagerðina um málið en hann tekur undir með því sem Sæmundur sagði um að veggjaldið væri of dýrt. „Við höfum mótmælt þessu gjaldi síðan okkur var kynnt þessi gjaldskrá um miðjan júní,“ segir Hjalti í samtali við blaðamann. Hjalti Þór Vignisson er oddviti Framsóknar og stuðningsmanna Hann segir að afsláttarkerfið sem boðið sé upp á sé „stórgallað“, einkum vegna þess að þar sé miðað við hvern bíl. „Hér í sveitinni eru langflestir með tvo bíla. Svo hefur þetta sérstaklega áhrif á bændur og rekstraraðila,“ segir hann og tekur einnig fram að notkun geti verið mismunandi eftir mánuðum. Hann vonast til þess að gjaldið allt verði einnig tekið til endurskoðunar, til dæmis með Vaðlaheiðargöng eða Hvalfjarðargöng að fyrirmynd. Hann vonar þá sérstaklega að nýstofnað innviðafélag taki málið til skoðunar. „Það er fyrirhugað að Göng og brú taki yfir veginn og ég átti samtal við nýráðinn forstjóra þess félags í síðustu viku og ég er vongóður um að þetta verði endurskoðað og lagað,“ segir sveitarstjórinn að lokum.
Veggjöld Sveitarfélagið Hornafjörður Vegagerð Samgönguáætlun Umferðaröryggi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira