„Svo lengi sem ég spila þá er ég glaður“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. október 2026 18:53 Hákon Arnar hefur spilað þrjár mismunandi stöður í síðustu þremur leikjum. Vísir/Anton Brink „Það er lítið hægt að kvarta þegar maður vinnur 3-0 á heimavelli. Þannig bara geggjað,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson eftir 3-0 sigur Íslands á annars slöku liði Búlgaríu á Laugardalsvelli.
Um var að ræða þriðja leik Íslands í C-riðli Þjóðadeildarinnar. Eftir 3-0 sigur á Lúxemborg ytra þá var annar 3-0 sigur niðurstaðan í dag. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, gerði sex breytingar milli leikja. „Mér fannst þeir sem komu inn gera ógeðslega vel. Þetta var svolítið öðruvísi leikur en úti gegn Lúxemborg. Lágum aðeins meira þar en fannst við halda vel í boltann, vindurinn gerði helling. Hefði getað skorað fleiri í fyrri hálfleik, fengum góðar stöður sem við hefðum getað nýtt betur en 3-0 sigur, það er ekki hægt að kvarta.“ Hákon Arnar átti stoðsendinguna á Orra Stein Óskarsson í fyrsta marki Íslands en fram að því hafði verið lítið að frétta. „Ég er sammála, það tók smá tíma [að skora]. Völlurinn er ógeðslega hraður, hann er góður. Fannst við vera að reyna of mikið, ætluðum að skora í hverri einustu sókn. Svo datt það niður, við skoruðum og sigldum þessu heim.“ Hákon Arnar hefur nú spilað þrjár stöður í síðustu þremur landsleikjum. Á miðri miðjunni, út á væng og sem hluti af tveggja manna framlínu. „Það skiptir alltaf máli en ég reyni að gera mitt besta þar sem Arnar setur mig. Svo lengi sem ég spila þá er ég glaður.“ „Auðvitað er áskorun. Þú þarft að fylgjast með 2-3 mismunandi stöðum á fundunum og fundirnir eru þó nokkrir með honum [Arnari]. Það er áskorun en ég klára það eins og alvöru maður.“ „Það má segja það. Mætti fækka þeim [fundunum] aðeins en það er búið að skila sér núna, tveir 3-0 sigrar í röð þannig að við erum að gera eitthvað rétt.“ Hákon Arnar varð fyrir smá hnjaski undir lok leiks. „Bara þreyttur, þreytumerki. Fékk aðeins í bakið, vorum 2-0 yfir og að fá víti svo sniðugast að fara út af. Leikur eftir 3-4 daga, þetta er alvöru keyrsla og svo líka þegar maður fer út þá eigum við leik á laugardag og svo Arsenal vikuna eftir. Þetta er alvöru keyrsla fyrir mig.“ Að endingu var Hákon Arnar spurður út í komandi leik í Eistlandi. „Kannski eru þeir að sýna þeir séu betri en heimslistinn segir, með fimm stig og ekki búnir að tapa leik. Við erum að fara á erfiðan útivöll og ætlum að fara til að vinna. Ætlum að fara út úr þessu verkefni á toppnum, verður krefjandi en það er bara fínt.“ Klippa: Hákon Arnar: „Svo lengi sem ég spila þá er ég glaður“ Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Tengdar fréttir Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Ísland er komið með sjö stig í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir 3-0 sigur á Búlgaríu á Laugardalsvelli. Mörkin þrjú sýndu þau einstaklingsgæði sem íslenska liðið býr yfir en frammistaðan í heild var ekki upp á marga fiska gegn annars slökum mótherja. 3. október 2026 14:32 Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson báru af í 3-0 sigri Íslands á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Sá fyrrnefndi brenndi þó af vítaspyrnu undir lok leiks og náði því ekki að fullkomna þrennuna. 3. október 2026 18:27 Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Orri Steinn Óskarsson var í ham í 3-0 sigri Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. 3. október 2026 17:33 Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Ísland er komið með sjö stig í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir 3-0 sigur á Búlgaríu á Laugardalsvelli. Mörkin þrjú sýndu þau einstaklingsgæði sem íslenska liðið býr yfir en frammistaðan í heild var ekki upp á marga fiska gegn annars slökum mótherja. 3. október 2026 14:32
Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson báru af í 3-0 sigri Íslands á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Sá fyrrnefndi brenndi þó af vítaspyrnu undir lok leiks og náði því ekki að fullkomna þrennuna. 3. október 2026 18:27
Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Orri Steinn Óskarsson var í ham í 3-0 sigri Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. 3. október 2026 17:33