Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. október 2026 07:28 Sánchez ávarpaði þjóðina í morgun. epa Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, boðaði skyndilega til þingkosninga í sjónvarpsútsendingu í morgun. Húsnæðiskreppa í landinu hefur valdið ríkisstjórninni vandræðum.
Sánchez hélt ræðu í beinni sjónvarpsútsendingu í morgun þar sem hann tilkynnti spænsku þjóðinni að þingkosningarnar yrðu þann 29. nóvember. Til stóð að halda næstu kosningar sumarið 2027. Ríkisstjórn Sánchez, sem er minnihlutaríkisstjórn, hefur verið undir vaxandi þrýstingi síðustu vikur sem jókst þegar hún tapaði atkvæðagreiðslu á þinginu um húsnæðisráðstafanir. Ráðstafanirnar voru lagðar fyrir þingið eftir að mál 87 ára konu sem var borin út af heimili sínu vakti athygli. Konan hafði ekki getað greitt fyrir mikla húsaleiguhækkun en töluverð húsnæðiskreppa er í landinu. Íbúar hafa leitað út á götur og mótmælt stöðu mála. Við upphaf ávarpsins sagði forsætisráðherrann að Spánn hefði staðið frammi fyrir nokkrum kreppum á undanförnum árum. Ríkisstjórn hans hefði þá náð nokkrum árangri þrátt fyrir tilraunir til að „sniðganga“ framfarir hennar. „Spánn er orðinn fyrirmynd í heiminum um frið, femínisma og velmegun,“ sagði Sánchez samkvæmt umfjöllun BBC. Hins vegar sé þörf á að endurnýja og auka stuðning fólks. Með kosningunum vilji hann tryggja að þingið veiti þjóðinni breiðari meirihluta. Sánchez tók við embætti forsætisráðherra í júní 2018 og lenti Sósíalistaflokkurinn hans síðan í öðru sæti í þingkosningunum árið 2023. Íhaldssamari Lýðflokkurinn hlaut flesta þingmenn í kosningunum en náði ekki að mynda meirihluta. Skoðanakannanir benda til þess að Lýðflokkurinn muni líklega verða aftur stærsti flokkurinn í næstu kosningum.
Spánn Kosningar á Spáni Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira