Fótbolti

Leik­dagur í Tallinn: Hitað upp á Ís­lands­torgi fyrir mikil­vægan leik

Aron Guðmundsson skrifar
Aron Guðmundsson, Kjartan Henry Finnbogason og Guðmundur Benediktsson eru í Tallinn og fjalla um leikinn mikilvæga í kvöld á Sýn Sport.
Aron Guðmundsson, Kjartan Henry Finnbogason og Guðmundur Benediktsson eru í Tallinn og fjalla um leikinn mikilvæga í kvöld á Sýn Sport. vísir/Siggi

Ísland heimsækir Eistland á A Le Coq leikvanginum í Tallinn í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld. Um mikilvægan leik fyrir bæði lið er að ræða og Vísir hitaði upp á Íslandstorginu í Tallinn í dag.

Vísir var í beinni útsendingu frá Íslandstorginu þar sem að Aron Guðmundsson, íþróttafréttamaður, var ásamt fyrrverandi landsliðsmönnunum Guðmundi Benediktssyni og Kjartani Henry Finnbogasyni. Upptöku má sjá í spilaranum hér að neðan.

Þeir félagar verða við vinnu fram á nótt því leikurinn hefst ekki fyrr en klukkan 21.45 að staðartíma, eða klukkan 18.45 að íslenskum tíma í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Íslendingar eru sögulega séð í miklum metum hjá Eistlendingum eftir að hafa fyrstir, árið 1991 undir forystu þáverandi utanríkisráðherrans Jóns Baldvins Hannibalssonar, viðurkennt endurheimt sjálfstæði Eista. Íslandstorg því tilvalinn staður til þess að hita upp fyrir leik kvöldsins. Nánar um það má lesa hér. 

Bæði Ísland og Eistland verið á góðu skriði í Þjóðadeildinni til þessa fyrir leik kvöldsins. Um einu taplausu lið riðilsins er að ræða og ljóst að sigurliðið í kvöld mun verma toppsætið fram í næsta verkefni. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli heima á Laugardalsvelli þar sem frammistaða íslenska landsliðsins olli vonbrigðum. Sigur í kvöld mun hins vegar fara langt með að tryggja Íslandi toppsæti riðilsins og sæti í B-deild.

Beina útsendingu frá Íslandstorginu í Tallinn má nálgast í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×