Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar 7. október 2026 07:00 Flokkur breskra Græningja, samþykktu á dögunum nýja stefnu gegn zíonisma og tveggja ríkja lausninni. Þeir segja, og er ég sammála mjög, að Palestínumenn og gyðingar ættu að búa saman í einu ríki með sömu lagalegu réttindi, ólíkt þeirri rasísku stefnu sem viðhefst hefur í nýlenduríkinu Ísrael frá stofnun þess í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. Þeir segja einnig að jafnaðarmenn Bretlands ættu að hætta að handtaka stuðningsfólk Palestine Action, aðgerðahóps stuðningsmanna Palestínu í Bretlandi. Á sama tíma styður formaður Vinstri grænna tveggja ríkja lausn og að koma Íslandi inn í samtökin IHRA (The International Holocaust Remembrance Alliance), sem hafa undanfarin 3 ár, líkt og aðrir zíonistahópar á Vesturlöndum, stutt glæpi þjóðarmorðingjanna sem kalla sig Ísraela. Hjálmtýr Heiðdal, formaður Ísland-Palestínu hefur ásamt fleirum bent á þetta. Almenningur á Vesturlöndum verður sífellt sannfærðari um illsku Ísraela og annarra zíonista og því myndi stefna formannsins gagnvart IHRA falla illa í kramið á almenningi ef fjölmiðlar og stjórnmálafólk myndu þrýsta á um svör um áhuga formannsins um samtökin og almenningur öðlast þekkingu á stjórnmálum zíonista. Slíkur þrýstingur myndi eingöngu verða til vegna áherslna fjölmiðlafólks á andstöðu við þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu en slíkar áherslur er ekki að finna hjá fjölmiðlunum og slíkt er því ekki að vænta. Heldur mætti búast við því að frjálslyndir og hægrisinnaðir fjölmiðlar Íslands og Evrópu muni reyna að gagnrýna stefnu breskra Græningja, enda fjölmiðlarnir margir hverjir undir pólitískri pressu frá fjármagnseigendum sem styrkja þá sem aftur hafa gjarnan tengsl við zíonistahópa frá Bandaríkjunum, Ísrael og víðar. Frjálslyndir líkt og hægrisinnaðir fjármagnseigendur eru bundnir af reglum kapítalismans og vestrænnar heimsvaldastefnu sem er stór hluti af íslenskri og evrópskri menningu. Zíonismi er hluti af bæði kapítalismanum og heimsvaldastefnunni og þetta skýrir m.a. áhugaleysi þessara hópa á þjóðarmorðinu í Gaza. Zíonismi er andstaða við mannréttindi og zíonistar segja alla gagnrýni á glæpi Ísraela vera sprottna frá "gyðingahatri". Ljóst er að breskir frjálslyndir jafnaðarmenn, líkt og þeir íslensku, muni beita sér gegn stefnu Græningja og viðhalda áframhaldi þátttöku íslenskra og evrópskra yfirvalda í þjóðarmorðinu í Gaza með margvíslegum viðskiptum við þjóðarmorðingjana. Stjórnmálafólk á Vesturlöndum er smeykt við að fá á sig stimpilinn "gyðingahatari" sem er vel skiljanlegt því enginn vinstra megin við öfgahægripólitík ný-nasista vill fá á sig slíkan stimpil. Ég ráðlegg fólki að kynna sér hugmyndafræði gyðinganna Avi Shlaim, Ilan Pappé og Norman Finkelstein sem allir eru miklir andstæðingar vestræna nýlenduríkisins Ísrael. Þeir útskýra þessi mál frá hlið friðsamra gyðinga og halda því statt og stöðugt fram að zíonismi sé andstæð gyðingdómi. Með hugrekki og réttsýni er því vel hægt að komast að sömu niðurstöðu og breskir Græningjar, að þjóðarmorð sé ekki í lagi, að daglegar aftökur á börnum séu ekki í lagi, að stofnun nýlenduríkis með því að gera innfædda brottræka sé ekki í lagi og að meðvirkni með sérhagsmunahópum sem vilja áframhald á þessu öllu sé ekki í lagi. Tveggja ríkja lausnin er ekki lausn vegna þess að enginn í Ísrael vill að ríki Palestínu verði komið á fót. Tveggja ríkja lausnin verður því eingöngu tilraun til að viðhalda status quo og fría sig frá ábyrgð frá því sem gerist í Gaza í dag á vegum Vesturlandaþjóða. Vegna fyrrnefndra tengsla formanns VG, Rósu Björk Brynjólfsdóttur, við zíonisma ákvað ég að bjóða mig fram gegn henni til formanns VG í vor. Ég hafði sagt mig úr Samfylkingu í vor, flokki sem hafði boðið mér að vera í forystu velferðarnefndar sinnar nokkrum árum áður, í mótmælaskyni við sinnuleysi Samfylkingarfólks, sem áður fyrr kallaði sig stuðningsfólk Palestínu, gagnvart þjóðarmorðinu á Gaza og viðskiptum íslensku ríkisstjórnar jafnaðarmanna við barnamorðingjana sem kalla sig Ísraela. Upphaflega hafði ég samband við fólk í mínu tengslaneti um mögulega stofnun nýs flokks, And-zíonistaflokksins, en ekki varð úr. Ég sendi inn skoðanapistil til stjórnar VG vegna framboðs míns en skrifstofustjóri flokksins, Svandís Svavarsdóttir, neitaði að birta hann. Ég óskaði í öðrum pósti til flokksins eftir því að flokkurinn myndi sýna fram á að mótframboð mitt myndi búa til lýðræðisveislu þar sem báðum aðilum yrði gert jafn hátt undir höfði og myndu fá að birta skoðanir sínar opinberlega á vettvangi flokksins í tengslum við formannskosningarnar. Það varð ekki raunin heldur. Nokkrum dögum fyrir formannskosningarnar birti flokkurinn auglýsingu á Facebook-síðu sinni fyrir hinn frambjóðandann, frambjóðandann sem var stjórn flokksins þóknanlegri, en gaf mér, mótframbjóðandanum sem beitti sér fyrir gagnrýni á fyrrum þingmenn og stjórnendur flokksins, engin tækifæri til slíks, til viðtals, til lýðræðisveislunnar sem ég óskaði eftir. Er þá vert að rifja upp sögu flokksins sem kallar sig Vinstri græna um verk hans í síðustu ríkisstjórn. Árið 2019 greiddu allir þingmenn flokksins atkvæði gegn hugmynd jafnaðarmanna um að jafna tekjur öryrkja og lágtekju eldri borgara við lægsta taxta verkalýðsfélaganna. Svo stórvægileg var þessi hækkun tekna öryrkja og lágtekju eldri borgara að áætlaður kostnaður við þetta nam 38 milljörðum á einu ári. Sumir vilja halda því fram að þetta sýni fram á að þetta sé ógerlegt en ég vill hins vegar meina að þetta sýni fyrst og fremst fram á gífurlegan ójöfnuð og fátæktarstefnu sem viðgengst á Íslandi og þetta því mikilvægt réttlætisatriði fyrir íslenskt samfélag sem verði að framkvæma. Þess má geta, í þágu samhengis umræddra upphæða, að lágmarkslaun 2019 námu 317 þúsund krónum sem er rétt tæplega sú upphæð á stúdíóíbúð sem ég borgaði mánaðarlega leigu fyrir á þessu ári á ónýtum almenna húsnæðismarkaðnum sem jafnaðarmenn hafa ekki haft áhuga á að laga. 317 þúsund myndu því í dag oft ekki nægja til leigu á lítilli stúdíóíbúð. Enn fremur stóð ríkisstjórn Vinstri grænna fyrir skipulögðum niðurskurði á Landspítala (samanborið við aukna árlega fjármögnunarþörf hans) sem olli því að Landspítalinn lýsti reglulega yfir neyðarstigi, hvatti almenning um að leita ekki til bráðamóttöku nema lífsnauðsyn krefði og starfaði með yfirfullar deildir af sjúklingum allan ársins hring. Þá var jafnframt niðurskurður í geðheilbrigðiskerfinu og útburður þriggja kvenna, fórnarlamba mansals, út úr húsnæði Útlendingastofnunar og úr landi. Ekki fallegur verknaður fyrir flokk sem kennir sig við feminisma. Við í stuðningshreyfingu flóttafólks á Íslandi töluðum jafnframt fyrir daufum eyrum á hverju ári þegar ríkisstjórn Vinstri grænna hugðist vísa flóttafólki í sárri neyð úr landi og jafnvel börnum. Í dag þykjast Vinstri grænir hins vegar hafa áhuga á velferð flóttafólks. Ég sé ekki ástæðu til þess að trúa VG í þessum efnum. Ef við dæmum fólk fyrir gjörðir þess þá hafa Vinstri grænir engan trúverðugleika í útlendingamálum. Þegar fólk fær nóg af niðurskurðarstefnum jafnaðarmanna á heilbrigðis- og velferðarkerfinu þá er því óráðlegt að leita til Vinstri grænna í von um betri tíð. Með formannskosningarnar afstaðnar fékk ég þó sæti sem varamaður í fulltrúaráði Vinstri grænna. Það var næsta skref í markmiði mínu um að koma flokknum af illri braut. Ég sendi flokknum 5 stefnubreytingartillögur sem teknar yrðu fyrir á fulltrúaráðsfundi síðastliðið vor. Markmið mín og stefnubreytingarhugmyndir á fundinum voru eftirfarandi: Vinstri grænir ættu að stofna sérstaka Palestínuhreyfingu innan flokksins. Vinstri grænir ættu að halda fundi tvisvar á ári í þágu uppkominna fósturbarna á Íslandi, jaðarhóps sem hefur litla sem enga rödd fengið í íslenskum stjórnmálum og stjórnkerfi, hvorki á undanförnum áratug né áður í sögu þjóðarinnar. Vinstri grænir ættu að vera fylgjandi lagabreytingu sem tryggir öryrkjum og lágtekju eldri borgurum landsins mánaðarlegar tekjur í það minnsta til jafns við lægsta launataxta verkalýðshreyfingarinnar fyrir fullt unnið starf og banna fyrrverandi þingmenn flokksins sem unnu gegn hagsmunum þessara hópa í tíð sinni í fyrri ríkisstjórn frá framboðslistum, stjórnum og skrifstofustörfum fyrir flokkinn til næstu 6 ára. Vinstri grænir ættu að banna fyrrverandi þingmenn flokksins sem unnu gegn hagsmunum fórnarlamba mansals á Íslandi (sjá mál Blessing Uzoma Newton) í tíð sinni í fyrri ríkisstjórn frá framboðslistum, stjórnum og skrifstofustörfum fyrir flokkinn til næstu 6 ára. Vinstri grænir ættu að taka formlega afstöðu gegn zíonisma, nýlenduríkinu Ísrael og öðrum nýlendustefnum. Þessar hugmyndir eru vissulega róttækar og stórar en jafnframt mikilvægar. Engar tillögur bárust frá öðrum flokksráðsfulltrúum, fólk ánægt með status quo. Í pontu á fulltrúaráðsfundinum óskaði ég eftir samtali við aðra flokksráðsfulltrúa flokksins um tillögur mínar og ég var mjög jákvæður og bjartsýnn gagnvart því að ná fínum árangri með sumar þessara tillagna og einhverjum með aðrar. En þá kom í ljós að flokkurinn hafði tekið ákvörðun um að breyta tillögum mínum áður en þær voru bornar fram gagnvart fulltrúaráði á fundinum. Ég mótmælti þessu en uppskar ekki árangur sem erfiði fyrir mótmælin. Þegar tillögurnar voru svo bornar upp var þeim hafnað í heild sinni hver eftir annarri og hafði fyrrverandi þingmaður flokksins, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, tekið það að sér að breyta öllum tillögunum og leggja þær fram með sínu höfði á fundinum. Önnur kona, sem ég kann ekki kenni á, tók það að sér að leggja til að vísa öllum tillögum mínum frá, einni eftir annarri og fulltrúaráðið var sameinað í því að samþykkja frávísunartillögur hennar og svo fór það. Ég mótmælti þessu öllu innilega en flokkurinn hafði gert upp hug sinn. Engar breytingar yrðu gerðar frá fyrri starfssemi og gerðum flokksins frá tímum fyrrum ríkisstjórnar. Status quo yrði raunin í þágu pólitískrar framtíðar Katrínar Jakobsdóttur og hennar nánustu félaga. Ef ekki hefði verið fyrir þessa grófu aðför að mér og tillögum mínum hefði ég áfram unnið með flokknum og fundið lausnir á málunum og málamiðlanir. Þessi hegðun sem þessi hópur sem þarna var staddur sýndi, hinn fámenni hópur já-fólks Katrínar Jakobsdóttur og hennar nánustu félaga, var einfaldlega of grófur og ég sá ekki ástæðu til þess að taka þátt í samstarfi við svoleiðis fólk. Forsendur fyrir samvinnu með VG byggðust ekki síst á óbilandi stuðningi flokksins við Palestínu - ef væri hann að finna - sem og að flokkurinn myndi snúa af braut fyrrum forystu sinnar, braut andstöðu við mannréttindi, andstöðu við öryrkja og lágtekju eldri borgara landsins og jöfnuð og andstöðu við samtal við okkur hin uppkomnu fósturbörn landsins. Bann við endurkomu fyrrum forystu og þingmanna flokksins á sjónarsvið VG hefði sýnt þjóðinni fram á tileinkun til betrunar og eflingar vinstrisins á Íslandi. Jafnframt sýna skoðanakannanir að nýr formaður flokksins, nýtur ekki trausts þjóðarinnar og mun ekki skapa flokki sínum fylgi að mínu einlæga mati, ekki síst í ljósi þeirra staðreynda sem ég vísa til í þessum pistli. Skoðanakannanir sýna jú að undir forystu Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, ná Vinstri grænir ekki á þing næst frekar en síðast. Þjóðin vill breytingar og alvöru pólitík í þágu fólksins en ekki bull og zíonisma. En lærst hefur mér það í pólitíkinni undanfarinn áratug að frjálslynt fólk, líkt og fasistar, samþykkja aldrei rök sem þeir hafa ekki sjálfir fundið upp á. Líklega er um að ræða þetta klassíska mannlega stolt og þvermóðsku sem gjarnan vill standa í vegi fyrir betrun og trúverðugleika fólks. En fólk kemst ekki langt án trúverðugleika heldur grefur það þannig sína eigin pólitísku gröf. Og þangað stefna Vinstri grænir. Græningjar á Bretlandi eru hins vegar, með því að hafa tileinkað sér formlega andstöðu gegn zíonisma og tveggja ríkja lausninni, nú að öðlast þennan trúverðugleika fólks og ekki síst okkur vinstra fólki á Vesturlöndum sem styður Palestínu og almenn mannréttindi. Á sama tíma eru Vinstri grænir á einhverjum allt öðrum nótunum og ekki líklegir til afreka fyrir vikið, fyrir nokkurn mann. Þannig að þegar að íslenskur almenningur fær, eins og ég, nóg af niðurskurði ríkisstjórnar jafnaðarmanna á heilbrigðis- og velferðarkerfinu og óskar eftir góðri vinstri pólitík þá segi ég við ykkur: látið ekki Vinstri græna plata ykkur til að gefa þeim atkvæði, jafnvel þó að þjóðin þurfi sárlega á að halda öflugum vinstri flokki, til dæmis til þess að sporna við uppgangi fasisma á Íslandi og í Evrópu. Því öflugur vinstri flokkur eru Vinstri grænir ekki. Þeir eru hefðbundinn frjálslyndur krataflokkur sem vinna nákvæmlega eftir sömu skaðlegu gildum og jafnaðarmenn ríkisstjórnarinnar vinna eftir í dag. Árangur gegn uppgangi fasisma mun því ekki nást með atkvæði til Vinstri grænna. Leita þarf lengra til vinstri í slíkum erindagjörðum. Höfundur er skráður í Sósíalistaflokkinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun