Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar 7. október 2026 06:32 Einstaklingur, tveir vinir eða tvær vinkonur setjast niður einu sinni til tvisvar í viku, ræða um daginn og veginn, fá stundum til sín gesti og ræða ýmist um sögulega atburði, snyrtivörur, viðskipti, morðgátur, stjórnmál, fótbolta, menningu, skák eða blaðra nánast samhengislaust eins og einnig eru dæmi um. Hugðarefnin sem um er fjallað í hlaðvörpum eru nær óþrjótandi og upptalningin hér að framan langt því frá að vera tæmandi. Spjallið er tekið upp og sett á netið, þar sem flestir nálgast það á þar til gerðum veitum. Fyrir þetta hefur Fjölmiðlanefnd tilkynnt fólki að það hafi brotið lög, að það kunni að sæta sektum allt að tíu milljónum króna og refsimeðferð komi til greina. Þetta er ekki tilbúið dæmi. Þetta er staða hlaðvarpsstjórnenda á Íslandi þar sem fyrir liggja dæmi um að einstaklingar hafi fengið háar fjársektir fyrir það eitt að tilkynna ekki hlaðvarp sem fjölmiðil til Fjölmiðlanefndar. Einfaldað má segja að afstaða Fjölmiðlanefndar byggist á því að hver sá sem ákveður dagskrá í hlaðvarpsþætti fari með ritstjórn, teljist því fjölmiðill og falli þar með undir eftirlitsskyldur fjölmiðlalaga. Jafnframt liggur fyrir að því vinsælla sem hlaðvarpið er, því líklegra er að það lendi undir smásjá nefndarinnar. Frá því Evrópuráðið hélt fjölmiðlaráðstefnu árið 2009, sem vill svo raunalega til að var haldin í Reykjavík, hefur ráðið ítrekað varað við því að þeim frjóa jarðvegi sem ný tækni veitir fyrir tjáningarfrelsi verði settar skorður. Það sama á við sé litið til Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefur talið of íþyngjandi skráningarkerfi netmiðla fara gegn tjáningarfrelsi. Eitt nýjasta dæmið er mál Kobaliya o.fl. gegn Rússlandi frá 2024 þar sem stjórnvöld þar í landi voru talin hafa brotið gegn mannréttindum með of íþyngjandi reglum um skráningu og eftirlit. Þótt ekki sé hægt að jafna framgöngu Fjölmiðlanefndar við framgöngu stjórnvalda í harðstjórnarríkinu er það á hinn bóginn óþægileg staðreynd að leita þurfi á þær slóðir til að finna dæmi um viðleitni stjórnvalda til að skylda þátttakendur í opinni umræðu til að tilkynna sig og lúta eftirliti stjórnvalds, að viðlögðum sektum og refsingu. Framganga Fjölmiðlanefndar á sér enga hliðstæðu hjá frændþjóðum okkar og fær vart staðist. Menningar- og nýsköpunarráðherra staðfesti í umræðum á Alþingi þann 21. september sl. að „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“. Í sömu umræðum áréttaði ráðherra mikilvægi þess að eftirlit væri ekki of íþyngjandi og megi ekki verða til þess að kæfa vaxtarbrodda í fæðingu. Þar hittir ráðherra naglann á höfuðið. Hið sama á við sé horft til Bretlands eða Bandaríkjanna. Í Bretlandi er ekki um að ræða skráningarskyldu hlaðvarpa. Í Bandaríkjunum væri skráning sem skilyrði fyrir tjáningu andstæð fyrsta viðauka stjórnarskrárinnar. Þau rök sem búa að baki afstöðu frændþjóða okkar er að tjáningarfrelsið megi ekki skerða að óþörfu. Eltingaleikur Fjölmiðlanefndar og hótanir hennar um fésektir og refsingu verða enn sérkennilegri þegar fyrir liggur að ráðherra málaflokksins hefur boðað, og birt í þingmálaskrá ríkisstjórnar, að leggja fram frumvarp þar sem útgangspunkturinn sé sá að hefðbundin hlaðvörp, eins og við þekkjum þau í dag, verði ekki skráningarskyld. Við getum ekki umgengist jafn heilagan rétt og tjáningarfrelsið af léttúð og tekið því sem sjálfsögðum hlut. Athafnir stjórnvalda sem grafa undan opinni umræðu í lýðræðisþjóðfélagi verður að stöðva. Þar sem ekkert virðist geta stöðvað Fjölmiðlanefnd verður að skora á ráðherra og Alþingi að ganga án tafar í það að taka af öll tvímæli með lagasetningu og kveða skýrt á um að hlaðvörpum verði það óskylt að skrá sig fjölmiðil. Með því yrði framkvæmdin jafnframt færð til samræmis við það sem tíðkast hjá frændþjóðum okkar. Höfundur er lögmaður og hefur gætt hagsmuna hlaðvarpsstjórnenda gagnvart Fjölmiðlanefnd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Hlaðvörp Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun