Skoðun

Seðla­banka­stjóri kominn í bakk­gírinn

Sigurjón Þórðarson skrifar

Það vekur athygli að seðlabankastjóri sem alla jafna hefur verið mjög varkár í að tjá sig um einstök stjórnarmál og jafnvel þingmannamál, skuli nú grípa til stóryrða vegna áforma í frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um að skapa fyrirsjáanleika, meira öryggi og sanngirni á leigumarkaði. Áform sem eru hluti af því að draga úr vægi verðtryggingar.

Allt fyrra skipunartímabil sitt í embætti seðlabankastjóra fór seðlabankastjóri með veggjum þegar ýmis frumvörp fyrri ríkisstjórna voru borin undir hann. Sagði í besta falli að fyrirliggjandi fjárlagafrumvörp væru skref í rétta átt. En nú þegar seðlabankastjóri er kominn á síðara skipunartímabil sitt grípur hann til fallbyssunnar þegar setja á bönd á ótakmarkaða möguleika eigenda húsnæðisfélaga og íbúða til að hækka leigu óstjórnlega.

Algengt er að húsaleiga sé hækkuð mánaðarlega samkvæmt neysluvísitölu, þannig að uppsöfnuð árleg hækkun húsaleigu verður langt umfram þróun verðlags. Eins og staðan er í dag ríkir algert frumskógarlögmál á leigumarkaði þar sem fjársterkir aðilar sem eiga tugi, hundruð og jafnvel um eða yfir þúsund íbúðir geta hækkað leiguna nánast að vild.

Genginn í grátkórinn

Nú þegar lagt er fram stjórnarfrumvarp um að leiga geti einungis hækkað einu sinni á ári og þá ýmist samkvæmt 1) árlegri hækkun neysluvísitölu, 2) um fyrir fram umsamið fast hlutfall af leigufjárhæð eða 3) um fyrir fram umsamda fasta fjárhæð; rís seðlabankastjóri upp á afturlappirnar og segir „leigubremsu náttúrulega mjög heimskulega.“

Hann stillir sér þar með upp í grátkór varnarliðs fjármagnseigenda innan þings og utan; með Samtökum atvinnulífsins, hagnaðardrifnum fasteignafélögum og fleirum sem alltaf sjá ofsjónum yfir öllu sem getur komið almenningi til góða en gæti hugsanleg dregið úr óstjórnlegri auðsöfnun þeirra sem maka krókinn. Hvort sem það er af verðbólgunni eða verðtryggingunni eða einokun á hinum ýmsu sviðum samfélagsins.

Það mætti halda að seðlabankastjóri hafi hrokkið í bakkgírinn frá því hann var efnahagsráðgjafi Gamma og forstöðumaður hjá Kaupþingi. Félaga sem léku lykilhlutverk í græðgisvæðingunni og í að koma Íslandi á vonarvöl í hruninu, með stærsta gjaldþroti Íslandssögunnar og þótt víðar væri leitað.

Ætti að fagna

Ef Seðlabankastjóri væri í raun með allan hugann við að ná niður verðbólgu, í stað þess að verja stöðugt hagsmuni fjármagnseigenda og kalla á sama tíma eftir hófsemi hjá vinnandi fólki, myndi hann að sjálfsögðu fagna tillögum sem draga úr sjálfvirkum kostnaðarhækkunum. Hann ætti að fagna því að settar verði reglur sem færa regluverk okkar í átt að því sem þekkist hjá löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við.

Íslenski fasteignamarkaðurinn er á vissan hátt rekinn á lögmálum „villta vestursins“ þegar kemur að samþjöppun eigna og samspili verðbólgu og leigu. Hin sér íslenska verðtrygging tíðkast ekki í flestum ríkjum Evrópu þar sem samningar eru ekki bundnir með jafn afgerandi hætti við neysluverðsvísitölu og hér þekkist.

• Í flestum ríkjum Evrópu, og þá sérstaklega á Norðurlöndunum, er algengt að samið sé um fast leiguverð til nokkurra ára, eða leigu sem hækkar um fasta prósentutölu, eins og t.d. 2 prósent á ári, eða markaðsendurskoðun á nokkurra ára fresti.

• Á Íslandi fá fasteignafélögin hins vegar „sjálfvirka“ hækkun vegna verðbólgu og stunda það sum að gera í kjölfarið matsbreytingu á eignum til hækkunar, burt séð frá því hvort markaðsverð hafi í raun hækkað. Seðlabankastjóra væri nær að setja spurningamerki við endurmat á virði félaga á þessum forsendum sem getur leitt til bólumyndunar.

Það gilda lög um Seðlabanka Íslands og þau tæki sem hann hefur til að ná markmiðum um 2,5 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli. Seðlabankastjóri hafði forystu um allt of mikla og skarpa lækkun vaxta fyrir nokkrum árum sem leiddi til fjárfestingabólu. Á seinni árum hefur hann síðan haft forystu um stöðuga hækkun vaxta í hæstu hæðir án sýnilegs árangurs í baráttunni við verðbólgu. Lofar alltaf að vextir lækki kannski á næsta ári.

Seðlabankastjóri ætti að fagna öllum leiðum til að draga úr vægi verðtryggingar. Því eins og hann hefur sjálfur sagt er verðtryggingin skaðvaldur sem dregur úr áhrifum á vaxtastefnu bankans og kemur í veg fyrir að hér geti byggst upp nafnvaxtaumhverfi í húsnæðismálum.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar




Skoðun

Sjá meira


×