Skoðun

Ís­lenskt tákn­mál er ekki er­lent tungu­mál

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar

Nýlega lagði Miðflokkurinn fram tillögu í borgarstjórn Reykjavíkur um að endurskoða reglur um túlkaþjónustu og skoða hvort setja eigi tímamörk á gjaldfrjálsa þjónustu.

Tillögunni var vísað áfram til borgarráðs til meðferðar. Engin ný takmörkun hefur því tekið gildi.

En umræðan vekur mikilvægar spurningar.

Í greininni sem liggur til grundvallar málinu er rætt um vaxandi kostnað vegna túlkaþjónustu og hvort eðlilegt sé að fólk geti fengið slíka þjónustu árum eða áratugum saman án þess að læra íslensku.

Það má ræða þá spurningu.

En þá verður að vera alveg skýrt hvaða túlkaþjónustu er verið að tala um.

Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál.

Í lögum nr. 61/2011 kemur fram að íslenskt táknmál sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Í 13. grein laganna segir jafnframt að ríki og sveitarfélög skulu tryggja þeim sem þess þurfa þjónustu á íslensku táknmáli og að óheimilt sé að mismuna fólki eftir því hvaða mál það notar.

Þess vegna er ekki sjálfgefið að hægt sé að fella táknmálstúlkun undir sömu reglur og túlkun erlendra tungumála.

Ef sömu tímamörk yrðu látin gilda um hvort tveggja gæti það rekist á lögbundin réttindi táknmálsnotenda og jafnvel leitt til ólögmætrar mismununar.

Táknmálstúlkun er ekki tímabundin brú þar til heyrnarlaus einstaklingur lærir annað tungumál. Hún getur verið nauðsynleg forsenda þess að hann geti átt full samskipti við stjórnvöld og fengið sömu þjónustu og aðrir.

Það er því ekki hægt að setja alla túlkaþjónustu undir sama hatt.

Raunar kemur fram í þeim kostnaðartölum sem hafa verið notaðar í umræðunni að kostnaður vegna táknmálstúlkunar sé ekki þar inni.

Ef markmið borgarinnar er að ræða túlkun fyrir fólk sem hefur annað talað móðurmál en íslensku ætti það einfaldlega að koma skýrt fram.

Þess vegna þarf borgarráð að svara einni einfaldri spurningu:

Taka möguleg tímamörk á gjaldfrjálsri túlkaþjónustu á nokkurn hátt til íslensks táknmáls og táknmálstúlkunar?

Ef svarið er nei ætti það að koma skýrt fram í afgreiðslu málsins.

Ef svarið er já snýst málið ekki lengur aðeins um kostnað heldur um lögbundin tungumálaréttindi, jafnræði og aðgengi heyrnarlausra að samfélaginu.

Íslenskt táknmál er íslenskt mál.

Og aðgengi að því er ekki munaður.

Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Handhafi viðurkenningar Málnefnd um íslenskt táknmál 2025. Hefur mikla þekkingu á táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum, leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál og verkefnastjóri með IPMA D-vottun.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×