Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar 8. október 2026 12:30 Í vikunni birtist grein eftir formann Heimilis og skóla þar sem skotið var hart á kennaraforystuna. Formaðurinn gaf þá skýringu að lausnin á því að bæta árangur barnanna okkar í PISA væri að lengja skólaárið. Ef við lengjum skólaárið verður allt betra? Ég skrifaði aðra grein í byrjun vikunnar sem snérist um nákvæmlega sama hlut þar sem verið er að finna lausnir sem skapa enn meiri vanda. En hver er raunverulegi vandinn? Af hverju getum við ekki bara lengt skólaárið og allt verður betra? Kennaraskortur Við glímum við kennaraskort. Eftispurnin eftir kennurum er meiri en framboðið og þar þurfum við að bregðast við. Er ekki orðið tímabært að endurskoða kennaranámið? Þarf kannski að stytta kennaranámið aftur og breyta því hvenær kennarar fá leyfisbréf? Verður þá meira framboð? Í Finnlandi fá kennarar réttindi til að kenna yngri börnum í leik- og grunnskóla eftir þriggja ára nám. Þeir geta síðan farið í áframhaldandi nám til að dýpka þekkingu þína í ákveðinni faggrein og öðlast þá réttindi til að kenna á eldri stigum skólans. Ungt fólk veigrar sér við að fara í fimm ára kennaranám hér á landi og velur frekar aðrar námsleiðir í háskólanum. Ef við lengjum skólaárið eins og staðan er núna stórefa ég að við fáum fleiri kennara inn í skólana. Vandinn myndi aukast. Námsefnisgerð Okkur skortir námsefni. Ég fagnaði þegar mennta- og barnamálaráðherra talaði um að setja meira fjármagn í námsefnisgerð. Það er löngu orðið tímabært. En það mál er enn í vinnslu og enn sem komið er hefur það ekki skilað sér í raunverulegum breytingum. Ef við lengjum skólaárið miðað við núverandi forsendur hvað eigum við þá að kenna? Eigum við að búa til meira námsefni? Vandinn lagast ekki við það. Kennararnir þyrftu að verja enn meiri tíma í að búa til námsefni í stað þess að undirbúa markvissa kennslu. Um leið væri hættan á að kennslan yrði ekki eins markviss né samræmd eins og kallað er eftir í samfélaginu. Leyfisbeiðnir foreldra Einn vandinn sem við stöndum frammi fyrir er að sumir nemendur fara í leyfi nokkrar vikur á ári. Sumir nemendur missa þannig úr heilt skólaár á tíu ára grunnskólagöngu. Ættum við að spyrja foreldra hvaða bekk barnið þeirra á að sleppa þegar barn þeirra hefur grunnskólagöngu sína: ,,Væri betra að barnið myndi sleppa 3. bekk eða viljið þið frekar að það sleppi 4. bekk?” Foreldrar bera ábyrgð á því námi sem barnið missir af á meðan það er í leyfi. Það verður að taka á þessum vanda og setja skýrari línur og mörk varðandi leyfisbeiðnir foreldra fyrir börn sín. Ég fór í skólaheimsókn til Berlínar í vor og þar þarf leyfi skólans til að fara með barn úr landi á skólatíma. Leyfi er ekki veitt nema við afar sérstakar aðstæður, t.d. ef nákominn aðila fellur frá og fjölskyldan þarf að sækja jarðarför erlendis. Foreldrar hafa verið stöðvaðir á landamærum og sendir til baka vegna þess að þeir voru ekki með leyfi skólans til að fara með barnið úr landi. Í kjölfarið fá þeir sekt. Ég er ekki að segja að við þurfum að fara þessa leið, en það þarf að fara einhvern milliveg. Myndi lenging skólaársins verða til þess að foreldrar myndu sjaldnar taka börnin sín úr skóla? Foreldrar myndu áfram óska eftir leyfi þegar líða tekur á vorið, enda eru margir þá farnir í sumarfrí og vilja fara með börnin sín í frí. Aðalnámskrá grunnskóla Það þarf að endurskoða námskrána okkar. Fækka þarf hæfniviðmiðum, einfalda námskrána og gera hana skiljanlegri. Þá gefst tækifæri til að samræma matskvarða á milli grunn- og framhaldsskóla og nota tíu stafa talnakvarða á báðum skólastigum. Núverandi breyting á kvarðanum þar sem tíu stafa talnakvarða á að troða inn í sex flokka matskvarða er skítmix sem er engum til góðs. Fjölbreyttari nemendahópur og agavandi samfélagsins Við stöndum frammi fyrir áskorunum með nemendahópinn okkar. Nemendahópurinn er orðinn fjölbreyttari. Við erum með fleiri nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og fleiri nemendur með flóknar áskoranir. Það sem sló mig helst í fréttum nýverið var að íslenskum karlmönnum finnst í lagi að beita ofbeldi til að leysa úr ágreiningi. Við skorum hlutfallslega hátt þar miðað við nágrannaríki okkar. Þarna erum við í stórum vanda. Þetta skilar sér inn í skólana og við þurfum að leggja mikið á okkur til að breyta þessari menningu. Við höfum náð góðum árangri í mínum skóla að breyta skólamenningu, en það tekur tíma, þolinmæði og samstöðu alls skólasamfélagsins. Mun lenging skólaársins taka á þessum vanda? Eigum við að halda okkur í skotgröfunum? Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Já, þeir gera það þegar kennarar fara í verkfall en það gera kjarasamningar flugvirkja líka. Þá komast börnin ekki til Tenerife með fjölskyldunni sinni. Komum okkur upp úr skotgröfunum og ræðum málin af alvöru. Hver er raunverulegi vandinn sem við glímum við? Ef við horfum til baka, hverju þurfum við að breyta frá því sem áður var? Ég held að ýmislegt myndi breytast ef við myndum byrja á rót vandans. Það á ekki að taka drastískar ákvarðanir bara til að breyta. Að lengja skólaárið eða breyta námsmatskvarða, þar sem tölurnar passa ekki inn í þann kvarða sem námskráin leggur upp með, er ekki rétta leiðin. Af hverju tekur það eitt pennastrik að breyta námsmatskvarða en ennþá er ekkert að frétta af nýju námsefni. Hvort skiptir meira máli? Við þurfum að rétta kennurunum okkar almennileg verkfæri. Tölum saman af virðingu og berum virðingu fyrir kennurunum okkar sem standa á gólfinu allan daginn. Ráðumst að rót vandans, gerum það faglega og flýtum okkur hægt. Höfundur er skólastjóri Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Mest lesið Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar