Vill fækka borgarfulltrúum um átta Birgir Olgeirsson skrifar 8. október 2026 12:21 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill fimmtán borgarfulltrúa aftur og sér ekki að fjölgun þeirra hafi bætt borgarmálin. Vísir/Einar Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skorað á Alþingi að leyfa sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill fimmtán borgarfulltrúa aftur og sér ekki að fjölgun þeirra í tuttugu og þrjá hafi bætt málefni borgarinnar.
Áskorunin var samþykkt á þriðjudag með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokksins gegn þremur atkvæðum Vinstrisins og Sósíalistaflokksins. Samfylkingin sat hjá, samkvæmt fundargerð borgarstjórnar frá 6. október. Í viðtali við fréttastofu segir Hildur að Sjálfstæðismenn hafi verið gagnrýnir á ákvörðunina um að fjölga borgarfulltrúum úr fimmtán í tuttugu og þrjá. Hún telur fulltrúana of marga og skynsamlegt að fækka þeim. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skorað á Alþingi að leyfa sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf, á bilinu fimm til 31.Vísir/Anton Brink „Það er auðvitað heilmikill kostnaður sem fylgir því að hafa svo marga borgarfulltrúa fyrir það fyrsta og ég get ekki séð að málefni borgarinnar hafi einhvern veginn batnað við það að fulltrúunum hafi fjölgað.“ Spurð hvort reynslan af fjölguninni hafi verið til góðs segir hún: „Ég get ekki séð það, nei. Ég held að talan sem áður var, 15 fulltrúar, hafi nú bara verið alveg prýðileg.“ Gæti sparað að minnsta kosti 125 milljónir á ári Samkvæmt launayfirliti Reykjavíkurborgar frá júlí 2026 fær borgarfulltrúi rúmlega 1,2 milljónir króna í grunnlaun á mánuði og um 87 þúsund krónur til að mæta kostnaði vegna starfsins. Fækkun úr 23 í 15 gæti sparað borginni að minnsta kosti 125 milljónir króna á ári í grunnlaunum, kostnaðargreiðslum og launatengdum gjöldum, samkvæmt útreikningi Vísis. Opnar fyrir fimm manna borgarstjórn Í áskoruninni er lagt til að sveitarstjórnir geti sjálfar ákveðið fjölda fulltrúa á bilinu fimm til 31. Þar með yrði Reykjavík heimilt að fækka borgarfulltrúum allt niður í fimm. Hildur var spurð hvort fimm manna borgarstjórn væri raunhæfur kostur fyrir Reykjavík og hvers vegna lágmarkið væri svo lágt. „Við viljum bara hafa þarna ákveðið svigrúm fyrir borgarstjórn til að ákveða þessi málefni sín sjálf. Eins og ég nefndi áðan þá voru hér áður 15 borgarfulltrúar. Ég held það hafi verið fínt fyrirkomulag,“ segir Hildur. Segir þröskuldinn mun lægri en inn á Alþingi Samfylkingin, Vinstrið og Sósíalistaflokkurinn gagnrýndu áhrif sem fækkun gæti haft á lýðræðið. Samfylkingin benti meðal annars á að mikil fækkun gæti þýtt færri flokka í borgarstjórn og að fleiri atkvæði féllu dauð niður. Hildur var spurð hvernig hún svaraði þeirri gagnrýni að fækkun myndi styrkja stærri flokkana og gera minni framboðum erfiðara að koma fólki að. „Það er auðvitað mjög lágur þröskuldur í dag til að komast inn í borgarstjórn, mun lægri heldur en að komast inn á Alþingi. Og mér finnst alveg eðlilegt að menn hafi nokkuð sterkt umboð þegar þeir taka sæti í borgarstjórn þannig að ég veit ekki hvort þetta myndi koma sérstaklega vel fyrir stóru flokkana eða litlu flokkana. En þetta myndi allavega leiða til þess að borgarfulltrúar sem taka sæti í borgarstjórn væru með sterkara umboð en þeir þurfa í dag.“ Frumvarp Sigríðar gæti dugað Fyrir Alþingi liggur frumvarp Sigríðar Á. Andersen sem myndi heimila Reykjavík að hafa fimmtán til tuttugu og þrjá borgarfulltrúa. Frumvarp Diljár Mistar Einarsdóttur gengur lengra og gerir ráð fyrir að sveitarfélög ákveði fjöldann sjálf, með því skilyrði að fulltrúar séu að minnsta kosti þrír og standi á oddatölu. Hildur var spurð hvort meirihlutinn myndi beita sér fyrir fækkun ef Alþingi veitti heimildina og hvort borgarfulltrúar yrðu þá fimmtán. „Það hefur verið áherslumál okkar Sjálfstæðismanna að minnsta kosti um árabil og við höfum lagt þá tillögu fram árlega við fjárhagsáætlunargerð að við skorum á þingið með þessum hætti sem við höfum núna gert, og við í meirihlutanum viljum að það sé meira svigrúm, þannig að við myndum klárlega skoða fækkun ef sú heimild myndi opnast.“
Reykjavík Borgarstjórn Alþingi Sveitarstjórnarmál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira