Skoðun

Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf

Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Það er mikið rætt um að auka þurfi raforkuvinnslu á Íslandi og tryggja orkuöryggi. Það er líka ástæða til að horfa vel á þá innviði sem við eigum og spyrja hvað þurfi að gera til að verja þá. Vatnsstaða Blöndulóns gefur fullt tilefni til þess.

Blönduvirkjun er mikilvægur hlekkur í orkuinnviðum Íslands. Árið 2017 hlaut Blöndustöð Blue Planet-verðlaun Alþjóðavatnsaflssamtakanna fyrir framúrskarandi árangur í sjálfbærri nýtingu vatnsafls. Við í Húnabyggð erum stolt af virkjuninni og því starfsfólki sem þar sinnir mikilvægum störfum í þágu landsins alls.

Þess vegna er okkur ekki sama um stöðuna.

Línurit Landsvirkjunar um vatnshæð Blöndulóns, skoðað 15. október, sýnir að vatnsstaðan í upphafi þessa vatnsárs liggur undir lægstu mörkum sögulega samanburðarins sem þar er birtur fyrir sama árstíma. Við göngum inn í veturinn með óvenjulága vatnsstöðu í lóninu. Þetta er raunveruleg staða sem kallar á viðbrögð.

Verjum vatnið og virkjunina

Vatnasviðið er uppspretta orkuvinnslunnar í Blöndu. Þess vegna þarf að horfa af fullri alvöru til þess hvort nýta megi vatn við rætur Blágnípujökuls og veita því inn á vatnasvið Blöndustöðvar til að styrkja vatnsbúskap virkjunarinnar.

Þennan möguleika þarf að kanna með það að markmiði að nýta betur þau orkumannvirki sem þegar eru til staðar. Hversu mikið vatn gæti fengist með þessum hætti og væri hægt að veita því inn á vatnasviðið með hóflegum tilkostnaði og takmörkuðu raski? Þessum spurningum þarf að svara með mati á rennsli, framkvæmdatilhögun og umhverfisáhrifum. Sú vinna þarf að vera í forgangi og leiða til aðgerða ef raunhæf og hagkvæm lausn er fyrir hendi.

Við getum ekki gengið að því vísu að vatnsbúskapurinn verði alltaf eins og hann hefur verið. Jöklar hopa, aðstæður breytast og við þurfum að horfa fram á veginn. Hér er tækifæri til að kanna hvernig styrkja megi undirstöður mikilvægrar virkjunar sem þegar þjónar landinu öllu. Það er líka hluti af því að tryggja orkuöryggi.

Nýtum þekkinguna áfram

Blöndulundur þarf líka að komast áfram. Við Vaðölduver byggist nú upp þekking og reynsla af framkvæmdum við vindorkuver hér á landi. Verktakar og starfsfólk öðlast færni í flutningum, undirstöðugerð og uppsetningu vindmylla við íslenskar aðstæður.

Það væri lítil fyrirhyggja í að láta þessa framkvæmdagetu tvístrast án þess að undirbúa framhaldið. Nú þarf að vinna að því að framkvæmdir við Blöndulund geti tekið við þegar framkvæmdum við Vaðölduver lýkur. Til þess þarf að ganga frá skipulagi, leyfum, tengingum og fjárhagslegum forsendum tímanlega.

Vindorka og vatnsafl geta unnið saman. Þegar vindurinn skilar raforku getur skapast svigrúm til að spara vatn í miðlunarlónum og nýta það síðar þegar þörfin er meiri. Sá ávinningur ræðst meðal annars af flutningsgetu og rekstri kerfisins, en þarna liggur tækifæri sem við eigum að nýta.

Samhliða þarf að verja vatnsbúskap Blönduvirkjunar, nýta betur veituleiðina og styrkja flutningskerfið. Við þurfum að horfa á Blöndusvæðið sem eina heild og láta þessi verkefni vinna saman.

Byggjum áfram þar sem innviðirnir eru

Ég skil vel að fólk hafi áhyggjur af áhrifum vindorkuvera á náttúru og landslag. Þær áhyggjur þarf að taka alvarlega. Að mínu mati eigum við að einbeita okkur að uppbyggingu á þegar röskuðum svæðum þar sem orkuinnviðir eru fyrir og hægt er að nýta þá áfram og styrkja eftir þörfum.

Á Blöndusvæðinu höfum við þegar virkjun, miðlunarlón, veituleið og flutningsmannvirki. Þar á að skoða vandlega hvernig frekari orkuvinnsla geti byggt á þeirri fjárfestingu og þekkingu sem þegar er til staðar. Það leysir okkur ekki undan því að meta áhrif nýrra framkvæmda, en það er eðlilegur staður til að byrja.

Ég treysti Landsvirkjun best til að reisa og reka vindorkuver af ábyrgð. Þar vegur þungt reynslan af orkuvinnslu, þekking starfsfólksins og árangurinn sem hefur meðal annars verið viðurkenndur með alþjóðlegum verðlaunum fyrir Blöndustöð. Því trausti fylgja líka væntingar um vönduð vinnubrögð, raunverulegt samráð og sanngirni gagnvart nærsamfélaginu.

Við eigum að nýta vel það sem þegar hefur verið byggt upp. Það á að vera sameiginlegt viðfangsefni þeirra sem vilja auka orkuvinnslu og þeirra sem vilja draga úr raski vegna hennar.

Vilji til uppbyggingar og krafa um sanngirni

Þá spyr einhver hvers vegna Húnabyggð sé með Blöndulund í skipulagsstoppi ef verkefnið er svona mikilvægt.

Afstaðan er skýr. Við viljum uppbyggingu, en henni verða að fylgja sanngjarnar forsendur fyrir samfélagið sem leggur til landið og tekur á sig áhrif framkvæmdanna. Húnabyggð hefur sett það skilyrði að undanþága orkumannvirkja frá fasteignamati verði afnumin áður en Blöndulundur fær framgang í skipulagi.

Það er engin mótsögn í því að vilja byggja upp og krefjast þess jafnframt að leiðréttur sé tekjustofn sveitarfélagsins. Sveitarfélagið þarf að geta byggt upp sína innviði og sinnt íbúum sínum. Ávinningur af orkuvinnslunni verður líka að skila sér þar sem hún fer fram.

Við erum að fara fram á leiðréttingu sem hefur beðið allt of lengi.

Það gengur ekki að vísa sífellt til þjóðhagslegrar nauðsynjar þegar óskað er eftir landi undir orkumannvirki, en láta fjárhagslegar forsendur nærsamfélagsins bíða. Ef stjórnvöld telja brýnt að Blöndulundur rísi þurfa þau líka að ljúka sínum hluta málsins.

Nú þarf að fylgja orðunum eftir

Við þurfum að verja vatnsbúskap Blönduvirkjunar, undirbúa Blöndulund þannig að reynslan frá Vaðölduveri nýtist áfram og tryggja að flutningskerfið geti tekið við orkunni. Jafnframt þarf afhendingargeta að vera til staðar fyrir atvinnuuppbyggingu í Húnabyggð og á Norðurlandi vestra.

Þetta kallar á samstillta vinnu stjórnvalda, Landsvirkjunar, Landsnets, sveitarfélagsins og landeigenda. Verkefnin þurfa skýra ábyrgð og tímasetningar svo eitt bíði ekki endalaust eftir öðru.

Húnabyggð hefur lagt sitt af mörkum og vill gera það áfram. En við ætlum líka að standa vörð um hagsmuni samfélagsins okkar.

Verjum það sem við höfum, leiðréttum forsendurnar og byggjum upp það sem þarf. Orkuöryggi verður ekki tryggt með yfirlýsingum einum saman.

Höfundur er forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar.




Skoðun

Sjá meira


×